Sunday, March 9, 2014

Helgin 6.-9. mars 2014

Ég fór austur á fimmtudag í blíðskaparveðri og kom aftur í bæinn á föstudag til að ganga frá sölunni á Grettó og svo fórum við að ganga frá kaupunum á Hvannalundi. 

Fór í göngu á föstudagsmorgun áður en ég fór í bæinn og þá var svo fallegt, nýfallinn snjór yfir öllu.

Svo á föstudagskvöldið fórum við í mat til Grétars og Elísbetar með Inga og Morten. Frábært kvöld og geggjaður matur, humar, fondú og pavlova :-)  fórum svo austur á laugardagsmorgun í afslöppun í sveitina og rétt komumst yfir heiðina áður en hún lokaðist :-)


Monday, March 3, 2014

London 27. feb - 2 . mars 2014

Ég og Vala vinkona fórum í frábæra helgarferð til London. Hér erum við að fá okkur morgun hressingu í fluginu út á fimmtudagsmorgun.

Náðum einni mynd á yo- sushi. 

Eðlileg og flott :-)

Fengum okkur drykk á Edge ekki bara einu sinni heldur tvisvar.

Það var svo gaman hjá okkur að ég gleymdi að taka myndir en  minningin lifir  ..............
Við fórum líka á We Will Rock You söngleikinn sem var mjög skemmtilegur.