Friday, September 5, 2014

Föstudagurinn 5. sept.

Mynd tekin við sólarupprás, gott að byrja daginn á yoga og hugleiðslu við sólarupprás.


Matarboð hjá Hönnu Stínu og Guðmundi.

Það var aðeins of gaman svo ég gleymdi að taka myndir af gestgjöfunum en hér er ég með Kötu heimasætunni. Fengum heimagerðar pizzur í forrétt sem voru alveg æði, gerðar með alúð og natni. Svo fengum við fylltar kjúklingabringur með rukola, eggaldin og zukini. Geggjaður matur. Eftiréttur var ís að hætti húsfrúarinnar.

Arnþór og Dísa með Kötu í sófanum að slaka á eftir matinn.

Matarboð hjá Hreini og Ingibjörgu.

Fórum í matarboð til  Hreins og Ingibjargar í sveitinni og fengum meðal annars í fordrykk bláberja mohito, mjög gott.

Sátum úti í sólinni og fengum brúsettur.

Ég og Máni.

Maggi, Ingibjörg, Hreinn, Máni og Móna.

Fengum sítrónu og rósmarinn kjúkling með tvennslags sallati.

Móna og Maggi.

Grillpartý.


Krækiberjahlaup og saft.

Fór í berjamó í hlíðum Vörðufells og tíndi krækiber og gerði hlaup og saft.