Thursday, December 25, 2014

Aðfangadagur 2014.

Fullt af pökkum undir trénu.

Ég fékk það hlutverk að leggja á borð og opna rauðvínið en Maggi sá um rjúpurnar og allt sem var með þeim. Hrikalega góða enda að norðan ( sem Vala reddaði ).

Fórum í messu kl 18.00 í Skálholtskirkju. Alltaf hátíðlegt og viss stemming.

Selfí án selfi-stangar sem mig bráðvantar :-) Alltaf glaðir og kátir :-)

Það var kveikt á þessari kertakrónu sem er frá 1650. Brynjólfur biskup ( Pabbi hennar Ragnheiðar ) var með hana í dómkirkjunni í Skálholti. Rosa falleg.

Skálholtskirkja í jólabúningi.

Geggjaðir dagar fyrir jólin í sveitinni.





Fimmtugs afmæli 20. des 2014

Ég hélt upp á fimmtugsafmælið mitt í sal Akóges í Lágmúla 4 . Ég get ekki verið ánægðari, það var svo gaman að hitta alla og jákvætt og fallegt andrúmsloft. Hér erum við Maggi með Mömmu. 

Sunday, December 14, 2014

Mamma og Dóra komu með mér í sveitina.


Mamma og Dóra komu með mér í sveitina í húsmæðraorlof. Gaman að vera með þeim. Styttum ferðina um eina nótt vegna vondrar veðurspár. En nutum þess að spjalla og borða góðan mat. 

Mamma, Dóra og Móna.
Ég hafði lítið jólahlaðborð fyrir okkur, yndislega gott, síld, lax, hamborgarahrygg, sushi, brauð og sallat.

í heimsókn til mömmu.

Ég fór til mömmu í heimsókn með Mána og Mónu, þeim fannst svo gaman að hitta mömmu að þau voru bara í fanginu á henni. Svo hjálpaði ég henni að setja upp jólaljós á svalirnar.

Helgin 5.-7. des 2014.

Vorum í sveitunni um helgina og nutum þess að vera í kyrrðinni. Fallegt vetrarveður og snjór á trjám.

Það var fullt tungl............

Snjórinn var svo fallegur á trjánum.


Móna og Máni voru svo slök eftir að hafa verið úti. 

Ég bakaði sörur með góðum árangri.

Maggi og Móna

Svo bakaði ég Ömmu brúnu, alltaf svo jólaleg kaka. 


Sunday, December 7, 2014

Matarboð hjá Ingu og Gunna 29. nóv 2014

Fórum í brunch til Ingu og Gunna, Fengum æðislegan mat, katl jólaborð með dönskum áhrifum.  Hér eru Maggi, Erla og Steina.

Gunni og Þórður.


Maggi, Erla, Steina, Inga, Gunni og Þórður.

Tvíreykt hangikjöt og kartöflusallat meðal annars.


Móna í góðu yfirlæti....


Fengum Ris alamand sem var það besta sem ég hef fengið, búið til úr gröðum gjónum :-)

Inga og Gunni með Mána og Mónu.


London 21.-23. nóv 2014

Skelltum okkur til London í tvær nætur. Gistum á Sandersson og fórum náttúrulega og fengum okkur sushi. Hér erum við með Stellu vinkonu okkar sem við hittum alltaf í London :-)

Stella........

Maggi á góðri stundu

Sá þetta merki sem minnir mig á afmælið...........


Herbergið okkar á Sanderson.

Herbergið okkar á Sanderson.

Matarklúbbur 15. nóv í Hvannalundi.

Ég og Maggi vorum með matarklúbb hjá okkur í Hvannalundi í fyrsta skipti. Alltaf gaman að hitta góða vini. Við vorum með andarsallat og svo fyllta kalkúnabringu og svo After Eight súkkulaði mús.
Fyllta kalkúna bringan.

Kata og Stjáni.

Kata, Stjáni, Gúðnú, Snorri, Maggi,Kristín, Þorri, Dóri og Gilla.

Ostapinnar með fordrykknum

Kristín og Þorri.

Þorri, Dóri og Gilla.