Sunday, December 25, 2016

Jól í nýju sveitinni

Komum hingað í sveitina 22. des og vorum að koma okkur fyrir og undirbúa jólin. Það var 40 cm nýfallinn snjór, en lettur og fallegur, auðvelt að keyra í honum.

Fallegt landslag er hér um allt og mikill gróður.

Vegurinn að húsinu okkar er meðfram skórækt , sígrænar furur og gréni.

Fallegt veður var á aðfangadag og gengum við að bænum Vaðnesi.

Maggi í fjarsk.

Kósý og notalegt að vera hér.

Jólatúllipanarnir.

Jóla jól.

Nýja húsið okkar :-)

Jólabrunch á Geira Smart 17. des


Fórum með Hreini og Ingibjörgu í brunch á Geira Smart, mjög gaman og gott. Frábær matur og flott umhverfi. 
Fengum okkur jóla bruch sem innihélt nokkra rétti sem voru bornir á borð.
 #1 Síld, epli, piparrót
#2 Grafin gæs, reyktur ostur, pera, sellerí, valhnetur
#3 Rifin grísasíða, tartaletta, kartöflur, rauðkál, baunir, rautt karrý
#4 Sýrður rjómaís, kirsuber, ástríðualdin, Omnom súkkulaði



Fórum svo á smá rölt í bænum með viðkomu á öldurhúsum og skautasvellinu á Ingólfstorgi.


Ég voða glaður með nýja hárskrautið á skautasvellinu á Ingólfstorgi.

Fengum húsið í Vaðnesi 5. des

Við fengum svo húsið 5. des og fluttum búslóðina 8. des í góðu veðri, ellefu gráður og frostlaust. 

Fyrstu myndirnar sem ég tók þegar við vorum að flytja, tekin af pallinum að heimkeyrslunni.

Potturinn og fallegt kjarr í kring,

Jólabrunch á Slippbarnum 3. des

Fórum í bæinn um hádegi og fórum í brunch á Slippbarnum, sem var alveg frábært og fórum svo í göngu um bæinn  með stoppum í búðum og börum :-)

Maturinn var óhefbundin en góður.
Meðal þess sem finna má á brunch hlaðborði Slippbarsins er:
  • Tómatsúpa með eldpipar, nýbökuðu brauði og pestó
  • Grísk jógúrt með hunangi, berjasultu og músli
  • Grænt heilsuskot
  • Blandaður ávaxtabakki
  • Tómatpasta með eggjum og Primadonna osti
  • Salatið hans Sesars
  • Chili rækjur
  • Grafinn lax með sætri sinnepssósu og dilli
  • Eggjakaka með osti
  • Chorizo pylsa og Serrano skinka
  • Grillaður reyktur grísakambur BBQ!
  • Steiktar kartöflur
  • Óheflað grænmeti
  • Flatbökur að hætti Slippbarsins
  • Djúpsteiktar pylsur á priki!
  • Vöfflur með sýrópi, sultu og súkkulaðihnetusmjöri
  • Nýbökuð svampkaka með hindberjum
  • Súkkulaðimús með karamellu- og hnetumarengs
  • Sætir bitar
Ávaxtasafi og uppáhellt kaffi fylgir með hlaðborðinu

Saturday, December 3, 2016

Gott að hafa í huga.

Gott að hafa alltaf í huga.

1. Þú breytir ekki fortíðinni
2. Skoðanir skilgreina ekki veruleika þinn
3. Lífshlaup allra er mismunandi
4.Tíminn læknar öll sár
5. Dómharka annarra snýst ekki um þig
6.  Ofhugsun gerir þig sorgmæddan
7. Hamingjan býr innra með þér
8. Hugsanir þínar hafa áhrif á skap þitt
9. Bros er smitandi
10. Góðvild er ókeypis
11. Það er allt í lagi að sleppa og halda áfram
12. Þú uppskerð eins og þú sáir


London 24.-27. nóv 2016

Skelltum okkur til London í helgarferð. 

Fórum á "Grænu sósuna" sem heitir reyndar "Le relais de l'Entrecote"  í Soho og er á allavega einum öðrum stað í London.  Bara einn réttur á matseðli nautakjöt, franskar og græn sósa, getur ekki klikkað en hægt er að velja úr nokkrum desertum og er þetta einn þeirra, marensturn.


Jólaskraut á Carneby street.

Hope, joy and love :-)

Tók svo fáar myndir í ferðinni en náði þessari kráku þegar við vorum að labba frá Russel street
niður í bæ eftir lunce á Yo sushi.