Sunday, January 28, 2018

Janúar 2018

Það er búið að vera helmikið á gerast í selskapslífinu í janúar. 12. jan þá fórum við með Völu í leikhús á Risaeðlunar og í sushi á undan svo 13. jan þá var matarklúbbur hjá Gillu og Stjána. 18. jan fórum við svo á Mathús Garðabæjar áður en við fórum á Himnaríki og helvíti í Borgarleikhúsinu. Föstudaginn 19. þá komu Lilja Dögg, Reynir, Anna Sigga og Pétur til okkar í mat í Garðabænum. Það var svo mikil gleði að ég gleymdi að taka myndir en þessi er úr matarboðinu hjá Gillu og Stjána.

Svo enduðum við þennan djamm mánuð í mataboði hjá Ingu og Gunna. Hér eru Erla og Þórður með Magga.

Maggi og Steina. 



Inga og Gunni að undirbúa.

Glæsilegt borð.

Erla og Þórður.



Saturday, January 6, 2018

Heitt toddy í des :-)

Eftir að við skreyttum jólatréð þá fórum við í göngu og kiktum á skreytinguna í jólahúsinu í Vaðnesi og fengum okkur svo heitt toddy á pallinum.

Jólahúsið í Vaðnesi.

Allir glaðir :-)

Mónu fannst skrítið að þurfa vera úti í kuldanum þegar hægt var að vera inni í hitanum.

Jóla jóla.

Afmælið mitt og jólin :-)

Ingibjörg, Hreinn og við Maggi fórum í bæinn eftir vinnu á afmælisdaginn minn og gengum niður Laugaveg og fórum á Scandinavian og fengum mjög góðan jólaplatta, mjög gott og líka mjög gaman :-)

Skál.


Glæsilegur jólaplatti.

Mikil stemming sem var bara rétt að byrja og fórum við á einn eða tvo pöbba áður en við fórum heim og skáluðum í Champagne :-)


Vorum svo í sveitinni um jólin og vorum með rjúpur með alles 

Allt reddý á aðfangadagskvöld.


Jól og áramót í sveitinni 2017.

Búið að vera mjög gott veður alla dagana, kalt en fallegt útivistaveður. Erum búnir að fara í göngu á hverjum degi hér um svæðið.

Selfí.

Falleg birta hefur verið, hér sétst í Íngólfsfjall.

Fórum í bæinn eina nótt milli jóla og nýárs og ég var að vinna einn dag. 

Hér erum við í göngu á næstu hæð við Kerið.

Vala kom og var með okkur um áramótin, hér er fyrsta pottaferðin hennar.

Hreinn og Ingibjörg komu með Flóru og Angelu í heimsókn og þáðu hjá okkur sushi sallat, mjög skemmtilegt.

Gaman var að sjá hvað Flóra var orðin óhrædd við Mónu og Mána.

Góðar vinkonur :-)

Angela, Flóra, Móna og Ingibjörg. 

Kökuboð eftir sushi sallatið.



Flottar. 

Við vorum með kalkún með alles á gamlárs. Hér er verið að útbúa bauna og beikon vefjur og valdorf sallat :-)


Allt að verða tilbúið :-)

Á nýjars dag fórum við í göngu í fallegu veðri áður en nýársgleðin hófst  með happy hour  :-)


Gaman að sjá sólina koma upp og setjast.

Nú er daginn farið að lengja og sólinn farinn að skína inn til okkar um miðjan dag .

Við eum búinir að gera yoga á hverjum morgni og tökum líka góða slökun á eftir og svo þegar ég hugleiði þá koma Máni og Móna alltaf og setjast í kjöltu mín, það er alveg ótrúglega gott að hugleiða með þeim. 


Móna í slökun.