Af hverju erum við að gera sömu hugleiðsluna í 40/90/120 eða 1000 daga?
Við skilgreinum okkur út frá vana. Við bregðumst við og hegðum okkur á ákveðinn hátt af því það er vani okkar.
Það má eiginlega segja að öll okkar vandamál komi frá vana.
Öll erum við fædd fullkomin með hreina sál en strax og lífið fer að móta okkur byrjum við að temja okkur alls konar vanamynstur. Allir vanar eru ekki slæmir en mörgum þeirra þurfum við að breyta. Með því að breyta vana okkar og því hvernig við skilgreinum okkur í leiðinni getum við breytt öllu í okkar lífi.
Vani er ómeðvituð hegðum sem kemur frá huganum, taugakerfinu og innkirtlekerfinu og vIð þurfum að vinna með alla þessa þætti til að brjóta okkur úr viðjum vanans.
Yogi Bhajan gaf okkur tækni til að hjálpa okkur með þetta. Allt yoga sem við gerum umbreytir okkur. Ef þú gerir sömu hugleiðslu eða kriyu nokkrum sinnum færðu dásamleg áhrif inn í líf þitt. En ef þig langar varanlega að breyta einhverjum vana í þínu lífi og því hvernig þú skilgreinir sjálfan þig getur þú gert sömu kriyu og/eða hugleiðslu á hverjum degi. Áhrifin eru mismunandi eftir því
hversu marga daga við gerum það sama og virknin sem við náum fram fer eftir því hvaða hugleiðslu/kriyu við erum með og hverju hún á að ná fram.
40 dagar: Ef þú gerir það sama á hverjum degi í 40 daga nærðu að brjóta upp gamlan neikvæðan vana sem kemur í veg fyrir að þú náir að blómstra.
90 dagaar: Þú staðfestir enn betur það sem áður hefur verið náð fram og nýr vani kemur inn í staðinn fyrir þann gamla.
120 dagar: Þú nærð að festa nýjan vana í undirmeðvitundinni í staðinn fyrir þann gamlla og jákvæð áhrif æfinga festist varanlega í sessi í persónuleika þínum.
1000 dagar: Þá masterar þú það sem kriyan/hugleiðslan á að gera fyrir þig og það er alveg sama hvaða aðstæðum þú lendir í þá nærðu að kalla fram nýja vanann.
Fengið að láni frá Byoga Reykjavík.
Thursday, August 22, 2013
Sunday, August 11, 2013
Yogi Bhajan
"Destiny is when you know what you should do and you don´t have the courage to do it and meet your fate. Yogi Bhajan said it takes the same amount of energy to do the right and the wrong thing. The only difference is fear. You always have doubt."
Thursday, August 8, 2013
Góðir dagar í sveitinni.
Hneta og Sunna í heimsókn.
~Thich Nhat Hanh
Hvert og eitt okkar þurfum að hafa andlega stefnu í lifi okkar. Hvað sem við vinum við, business, stjórnmálamenn, kennarar, eða fræðimenn ættum við að hafa andlega skynjun í okkar daglega lífi. Ef við höfum ekki þessa andlegu skynjun, þá getum við ekki tekist á við andlega spennu og örvæntingu, eða mótsagnir í okkar huga. Við getum ekki átt góð samskipti við vinnufélaga okkar, fjölskyldu okkar, samfélag okkar. Hver og einn verðu að hafa kraft á sinni sönnu andlegu leið.
~Thich Nhat Hanh
Tuesday, August 6, 2013
Monday, August 5, 2013
Hamingjan
Það er stundum sagt að það séu tvær tegundir af fólki til. Þeir sem kjósa að vera hamingjusamir og þeir sem kjósa að vera það ekki. Hamingja er nefnilega ekki eitthvað sem þú vinnur í Lottó eða færð í launaumslaginu. Hamingja er lífsstíll sem fólk kýs sér með því að horfa öðruvísi á hlutina, lifa lífinu hamingjusamt.
Til þess eru nokkrar leiðir og hér förum við yfir nokkur atriði sem hamingjusamt fólk tileinkar sér.
1. Ekki erfa hlutina
Hamingjusamt fólk veit að það er betra að fyrirgefa og gleyma. Ellegar gæti neikvæð orka ýtt í burtu jákvæðri líðan. Ef þú erfir hlutina við einhvern aðila veldur það streitu, jafnvel depurð og kvíða. Hvers vegna að láta einhvern sem hefur gert þér eitthvað hafa þetta vald yfir þér, stjórna þér?
2. Koma vel fram við alla
Það hefur víst verið vísindalega sannað að góð framkoma við annað fólk veldur aukinni hamingju. Í hvert sinn sem þú framkvæmir óeigingjarna hluti framleiðir heilinn hormón sem heitir Serotonin sem dregur úr streitu. En þetta er ekki það eina jákvæða við góða framkomu því það byggir einnig upp góð sambönd við annað fólk.
3. Horfa á vandamál sem áskoranir
Orðið vandamál á ekki að finnast í orðabók þess hamingjusama. Vandamál er eitthvað neikvætt, eitthvað sem dregur fólk niður – þarf að kljást við. Áskorun eða verkefni felur í sér að þurfa að kljást við eitthvað, takast á við eitthvað spennandi. Virkar svo miklu betur.
4. Vertu þakklát/ur fyrir það sem þú hefur
Það er til máltæki sem hljómar einhvern veginn svona „Hamingjusamasta fólkið á ekki mest af öllu, það gerir bara best úr öllu því sem það á.“ Það veldur endalausri neikvæðni og óánægju ef orkan er sett í að sækjast eftir hlutum í stað þess að vera ánægð með það sem við höfum.
5. Láttu ekki litlu hlutina trufla þig
Spurðu þig hvort þetta vandamál eða verkefni skipti einhverju máli eftir eitt ár. Lífið er of stutt til að láta litlu hlutina trufla sig.
6. Hugsaðu stórt
Ef þú hugsar stórt, lætur þig dreyma stóra drauma ertu mun líklegri til að láta eitthvað af því rætast.
7. Talaðu vel um aðra
Að vera góð manneskja veldur betri líðan en að vera slæm manneskja. Segir sig sjálft eiginlega. Eins gaman og það getur verið að slúðra þá veldur það vondri líðan. Að tala vel um aðra hvetur til jákvæðrar hegðunar, jákvæðra hugsana.
8. Engar afsakanir
Benjamin Franklin sagði eitt sinn „Sá sem er góður í afsökunum er sjaldnast góður í einhverju öðru.“ Hamingjusamt fólk afsakar sig ekki eða kennir öðrum um mistök sín. Þess í stað reyna þau að bæta fyrir þig og bæta sig.
9. Lifðu í núinu
Það er tilgangslaust að hanga í fortíðinni eða kvíða framtíðinni. Njóttu þess að lifa í dag. Andaðu að þér lífinu – núna.
10. Vaknaðu alltaf á sama tíma
Hefurðu ekki tekið eftir því að fólk sem á velgengni að fagna virðist alltaf vakna snemma? Að vakna á sama tíma á hverjum morgni tryggir jafnvægi í líkamsstarfsemi, eykur framleiðni og dregur úr líkamsstreitu.
11. Slepptu samanburði
Hver á sitt eigið líf svo hvers vegna að bera sig saman við aðra? Ef þú heldur að þú sért betri en næsti maður veldur það óeðlilegri góðri tilfinningu. Ef þú heldur að einhver annar sért betri en þú veldur það tilgangslausri vanlíðan. Þú verður hamingjusamari með því að horfa á þitt líf og fagna velgengni annara.
12. Veldu vinina vel
Óhamingja elskar góðan félagsskap. Þess vegna er mikilvægt að þínir vinir séu hamingjusamir, jákvæðir og fullir af krafti og gleði.
13. Ekki leita eftir viðurkenningu
Hamingjusömu fólki er nokk sama hvað öðrum finnst um það. Það fylgir eigin sannfæringu og lætur ekki baknagandi tuðandi tungur draga sig niður. Það er ekki hægt að gera öllum til geðs. Hlustaðu á skoðanir annara en þín viðurkenning er sú eina sem skiptir máli.
14. Hlustaðu
Talaðu minna, hlustaðu meira. Að hlusta heldur huganum opnum – fyrir nýjum hugmyndum og skoðunum. Því betur sem þú hlustar því betra.
15. Ræktaðu samböndin
Einmana manneskja er óhamingjusöm manneskja. Hamingjusamt fólk á í góðum samböndum við maka, vini og ættingja. Taktu alltaf frá tíma til að rækta samböndin við þitt fólk.
16. Hugleiddu
Hugleiðsla kemur jafnvægi á hug og líkama. Þú þarft ekki að vera einhver Zen meistari en nauðsynlegt er að geta hugleitt til að róa taugarnar ef á þarf að halda.
17. Borðaðu vel
Óhollur matur, skyndibiti og ruslmatur dregur úr orkunni og það er erfitt að vera hamingjusamur þegar orkuna vantar. Allt sem þú borðar hefur bein áhrif á getu líkamans til að framleiða réttu hormónin. Það hefur áhrif á skap, geðsveiflur og fókus. Veldu því mat sem heldur þér í réttu formi.
18. Hreyfðu þig
Gömul tugga en regluleg líkamsrækt veldur hamingju, réttu hormónin fara af stað í líkamanum. Svo og eykst sjálfsöryggi.
19. Gleymdu þér ekki í veraldlegum gæðum
Tveir bílar, hjólhýsi og sumarbústaður veldur ekki sjálfkrafa hamingju. Hamingjusamt fólk hleður ekki veraldlegum gæðum í kring um sig – þau draga fólk bara niður. Rannsóknir hafa sýnt að Evrópubúar eru hamingjusamari en bandaríkjamenn þar sem þeir eiga minni heimili, minni bíla og færri hluti.
20. Segðu sannleikann
Að ljúga veldur streitu, dregur úr sjálfsöryggi og kemur fólki til að líka illa við þig. Sannleikurinn gerir þig frjálsan segir máltækið. Að vera heiðarlegur eykur traust annara á þér. Segðu alltaf satt og afsakaðu sannleikann aldrei.
21. Vertu við stjórn
Hamingjusamt fólk velur sjálft sína stefnu. Láttu ekki aðra segja þér hvað þú átt að gera eða hvernig þú átt að lifa lífinu.
22. Sættu þig við stöðuna eins og hún er
Um leið og þú sættir þig við að lífið er ekki alltaf sanngjarnt eykur þú á hamingju þína. Það er tilgangslaust að ergja sig á hlutum sem þú getur engan veginn breytt. Einbeittu þér að því að hafa áhrif á það sem þú getur breytt.
Sunday, August 4, 2013
Verslunarmannahelgin 2013
Thursday, August 1, 2013
Fórum svo til London á leiðinni heim-Júlí 2013.
Sitges júlí 2013
Fórum til Sitges og vorum þar í viku. Frábær vika, gott veður . |
![]() |
Hittum Inga Þór og vorum soldið með honum og kinntumst líka dönskum vinum hans . |
![]() |
Ég og Maggi á Parrot. |
Smá drykkur fyrir matinn. |
Ég, Ingi, Morten og Jens. |
Fallegt í Sitges, lítill og fallegur miðbær með göngugötum. |
Ströndin stendur alltaf fyrir sínu. |
Stofan í íbúðinni okkar, Rebera Penthouse. |
Útsýnið úr íbúðinni okkar. |
Útsýnið úr íbúðinni okkar. |
Útsýnið úr íbúðinni okkar. |
Subscribe to:
Posts (Atom)