Af hverju erum við að gera sömu hugleiðsluna í 40/90/120 eða 1000 daga?
Við skilgreinum okkur út frá vana. Við bregðumst við og hegðum okkur á ákveðinn hátt af því það er vani okkar.
Það má eiginlega segja að öll okkar vandamál komi frá vana.
Öll erum við fædd fullkomin með hreina sál en strax og lífið fer að móta okkur byrjum við að temja okkur alls konar vanamynstur. Allir vanar eru ekki slæmir en mörgum þeirra þurfum við að breyta. Með því að breyta vana okkar og því hvernig við skilgreinum okkur í leiðinni getum við breytt öllu í okkar lífi.
Vani er ómeðvituð hegðum sem kemur frá huganum, taugakerfinu og innkirtlekerfinu og vIð þurfum að vinna með alla þessa þætti til að brjóta okkur úr viðjum vanans.
Yogi Bhajan gaf okkur tækni til að hjálpa okkur með þetta. Allt yoga sem við gerum umbreytir okkur. Ef þú gerir sömu hugleiðslu eða kriyu nokkrum sinnum færðu dásamleg áhrif inn í líf þitt. En ef þig langar varanlega að breyta einhverjum vana í þínu lífi og því hvernig þú skilgreinir sjálfan þig getur þú gert sömu kriyu og/eða hugleiðslu á hverjum degi. Áhrifin eru mismunandi eftir því
hversu marga daga við gerum það sama og virknin sem við náum fram fer eftir því hvaða hugleiðslu/kriyu við erum með og hverju hún á að ná fram.
40 dagar: Ef þú gerir það sama á hverjum degi í 40 daga nærðu að brjóta upp gamlan neikvæðan vana sem kemur í veg fyrir að þú náir að blómstra.
90 dagaar: Þú staðfestir enn betur það sem áður hefur verið náð fram og nýr vani kemur inn í staðinn fyrir þann gamla.
120 dagar: Þú nærð að festa nýjan vana í undirmeðvitundinni í staðinn fyrir þann gamlla og jákvæð áhrif æfinga festist varanlega í sessi í persónuleika þínum.
1000 dagar: Þá masterar þú það sem kriyan/hugleiðslan á að gera fyrir þig og það er alveg sama hvaða aðstæðum þú lendir í þá nærðu að kalla fram nýja vanann.
Fengið að láni frá Byoga Reykjavík.
No comments:
Post a Comment