Tuesday, November 26, 2013

Blómkálspizza - alveg geggjuð :-)

Ég bjó til þessa blómkálspizzu, hrikalega góð og holl.

BLÓMKÁLSPIZZA FYRIR 4
Botn:
½ haus blómkál
1 egg
75 g ostur 9%
25 g feitur ostur
2 hvítlauksrif
½ tsk lauksalt
1 tsk oregano
Blómkálið skorið smátt og sett í örbylgjuofn í 8 mín. Hrært með ostinum,egginu og kryddinu. Búinn botn úr þessu á bökunarpappír, bakað við 200˚ í ca 15 mín, má alveg brúnast aðeins.

Tómatsósa
1 dós tómatar
Hvítlaukur, oregano, timínan og basilikka eftir smekk, láta aðeins sjóða.

75 g ost 9%
50 g feitan ost (jafnvel eitthvað af gráðosti)
Grænmeti sem okkur þykir gott, s.s. rauðlauk, sveppi, papriku.

Setja hæfilegt magn af sósu á botninn og síðan ostinn yfir og grænmetið, baka í 15 mín við 200 gráður. Bera fram með fullt af klettasalati og parmaskinku og parmesan, ath, þessi skammtur er fyrir 4.

40 g parmaskinka
25 g parmesanostur

Verði ykkur að góðu

Flottar myndir frá liðinni helgi, fallegt veður. 23.-25. nóv 2013

Fallegur morgun himin.










Orð til umhugsunar frá Guðna Gunnars.

Allt er orka.
Allt annað er blekking. Orkan tekur við öllu sem að henni er beint og þess vegna liggur valdið í okkar eigin höndum. Við getum valið að hafa áhyggjur og blóta okkur sjálfum og lífinu í sand og ösku – eða við getum valið að beina ljósi okkar að uppvexti hins góða í kringum okkur.

Allt sem þú veitir athygli vex og dafnar – viljandi eða óviljandi. Þegar þú hugsar um það sem þú villt ekki - þá ert að vilja það!
Að vakna til vitundar er upphaf ferðalags frjáls vilja, forsenda þess að veita athygli viljandi.
Eina leiðin til að viðhalda vitund er að taka fulla og óskerta ábyrgð á eigin tilvist.

Sunday, November 17, 2013

Fleyri myndir frá helginni.




Maggi og Móna.

Krúttin með húfur :-)

Vetrarlegt í sveitinni 17. nóv 2013

Fórum í göngu í morgun í stilltu og fallegu veðri en soldið kalt.

Gengum niður með ánni og komum upp á veginn hjá brúnni yfir Iðu.

Móna í nýju peysunni sem við keyptum í Aspen

Fallegt, snjór á trjánum.

Maggi.

Vetrarlegt

Vörðufell.

Máni í nýju peysunni sinni  og Maggi í fjarska.

Saturday, November 16, 2013

Sveitin 16. nóv 2013

Yndislegur morgun, kyrrðin áþreifanleg :-)
Móna kúrir í fanginu á Mána.


Matarklúbbur hjá Kötu og Dóra 9. nóv 2013

Stórglæsileg veisla hjá Kötu og Dóra. Hér eru Guðnú, Krístín og Snorri.

Maggi, Þorri, Snorri, Kristín og Guðný.

Ég, Þorri, Maggi og Kristján.

Skvísunar Kata og Gilla.

Gestgjafarnir

Lambalundir.

Eftirréttur.

Reykt önd á sallatbeði.

Saturday, November 9, 2013

Gróðursetning í Nóvember

Vala gaf mér hvílauk til að setja niður, en það var komið soldið frost þannig að ég þurfti að nota hamar og skrúfjárn til að komast 10 cm niður fyri frost. En það tókst og vonandi verður góð uppskera næsta sumar.


Monday, November 4, 2013

Skemmtileg helgi 2.-3. nóv 2013

Fengum Snorra, Stínu, Rannveigu og Kára í heimsókn til okkar. Þau komu rétt eftir hádegi á laugardag og fengu nýbakað brauð og blómkálsúpu, svo fórum við í göngu um Laugarásinn.  Þegar við komum aftur heim þá fórum við í pottinn og einn kaldan á kantinum :-) eftir það var boðið upp á Pub Quiz og kampavín. Svo borðuðum við saman og áttum notalegt kvöld saman. Yndisleg helgi að baki og eikon og begg í morgunmat áður en þessir góðu gestir fóru. 
Gunnar, Snorri, Krístín, Maggi og Rannveig. Móna og Máni í fanginu á Magga og Rannveigu.

Beauty :-) Snorri og Krístín

Allir glaðir.

Friday, November 1, 2013

Thick Nhat Hanh gems- Ekki vera hræddur við að elska. Án kærleika er lífið ómuglegt.




Thich Nhat Hanh gems

Innra með okkur öllum er garður, sem við verðum að annast. T.d fortíðinn, sem þú hefur skilið eftir í langan tíma og ekki unnið úr. Þú ættir að vita nákvæmlega hvað er að gerst í þínum eigin garði og reyna að hafa allt í röð og reglu. Endurheimta fegurð, endurheimta sátt í garðinum þínum. Margir munu njóta garðsins þíns ef honum er vel sinnt.
Thich Nhat Hanh gems