Tuesday, November 26, 2013

Blómkálspizza - alveg geggjuð :-)

Ég bjó til þessa blómkálspizzu, hrikalega góð og holl.

BLÓMKÁLSPIZZA FYRIR 4
Botn:
½ haus blómkál
1 egg
75 g ostur 9%
25 g feitur ostur
2 hvítlauksrif
½ tsk lauksalt
1 tsk oregano
Blómkálið skorið smátt og sett í örbylgjuofn í 8 mín. Hrært með ostinum,egginu og kryddinu. Búinn botn úr þessu á bökunarpappír, bakað við 200˚ í ca 15 mín, má alveg brúnast aðeins.

Tómatsósa
1 dós tómatar
Hvítlaukur, oregano, timínan og basilikka eftir smekk, láta aðeins sjóða.

75 g ost 9%
50 g feitan ost (jafnvel eitthvað af gráðosti)
Grænmeti sem okkur þykir gott, s.s. rauðlauk, sveppi, papriku.

Setja hæfilegt magn af sósu á botninn og síðan ostinn yfir og grænmetið, baka í 15 mín við 200 gráður. Bera fram með fullt af klettasalati og parmaskinku og parmesan, ath, þessi skammtur er fyrir 4.

40 g parmaskinka
25 g parmesanostur

Verði ykkur að góðu

No comments:

Post a Comment