Tuesday, December 31, 2013

Gamlársdagur 2013

Fórum í göngu um Laugarásinn í góðu veðri.

Gengum fyrst út af brennunni sem verður keveikt í í kvöld við Höfðaveginn.

Maggi og Skálholt í baksýn.

Sólinn náði að gægjast aðeins upp yfir sjóndeildarhringinn.

Ljósmyndarinn Magnús.

Fallegt vetrarveður.

Sjálfsmynd.

Móna og Máni voru spræk og nutu þess að vera úti.

Saturday, December 28, 2013

Jólin 2013

Við byrjuðum jólin á því að fara í Skálholtskirkju í aftansöng. Alltaf jafn hátíðlegt og fallegt. Prestarnir Egill og Kristján voru saman með messuna og Benedikt Kristjánsson söng einsöng  "Ó helga nótt" alveg ótrúlega vel og fallega.

Stemmingsskreyting.

Förum í pottinn tvisvar til þrisvar á dag, algert æði.

Maggi eldaði rjúpur og alles og það klikkaði ekki frekar en fyrri daginn.

Maggi og Máni að lesa jólkortin.

Veðrið búið að vera mjög gott allan tímann en snjóaði soldið á Þorláksmessu, annars er veðrið búið að vera bjart og fallegt en kalt.

Morgnarnir hafa verið sérstaklega fallegir þegar sólin hefur verið að koma upp.

Máni 

Ég og Vörðufellið :-)

Ég,  Máni og Móna úti á tjörninni hér fyrir framan sem er alveg botnfrosin.

Sunday, December 22, 2013

21. des 2013.

Endaði afmælisdaginn á jólahlaðborði hjá Ingibjörgu og Hreini, Yndislegt kvöld.

Máni að slava á í boðinu

Máni og Móna kominn í slökun eftir langan og skemtilegan dag.

Flottar mæðgur

Þessar flottu mæðgur komu allar í jólaklippinu á stofuna í desember og ég stóðst ekki freistinguna að taka eina mynd af þeim. Gríma, Mirra og Ragga :-)


Saturday, December 21, 2013

Afmælis Sadhana 21. des



Fór í Sadhana í morgun á vetrarsólstöðuhátið. Hér er ég með Auði Bjarna og Estrid. Auður gaf mér þessi blóm og fallegan púða.

Hitti þessar sem ég útskrifaðist með úr yogakennaranáminu.
Fór í sveitina með blóminn sem Auður gaf mér.


Fjölskyldan mín í mat

Við buðum fjölskyldu minni í mat á Grettó. Mamma, Dóra, Ásgeir , Henna og Pétur.
Mamma, Dóra og Ásgeir

Henna og Pétur.

Pétur Óli og Jerel vinur hans.

Gunnar, Birkir og Alfreð.

Leikhús.

Vala bauð okkur í leikhús og út að borða á Kringlukránna. Við fórum á Jeppa á Fjalli sem er alveg frábær sýning og hálfgerðir tónleikar.



Saturday, December 14, 2013

Orð til umhugsunar sem ég fékk lánað frá Heilsubót.

Að vera í líðandi stundu er mjög áhugavert sjónarmið, það sem margir kalla núvitund.
Samkvæt Yoga að vera í líðandi stundu ákvarðast af okkar innra frelsi. Á þann hátt getum við stöðugt verið í líðandi stundu, en hinsvegar gæði líðandi stundu fer eftir okkar ávanabundnu hugsunum.

Hluti af okkar ávanabundnu hugsunum er það sem við köllum ég, mitt starf mín hlutverk í lífinu, annað orð yfir okkar ávanbundnu hugsanir eða hegðanir kallast minningar.

Ef við erum í líðandi stundu en stöðugt bundinn af okkar ávanabundnu hugsunum þá verður gæði hinnar líðandi stundu á þann hátt, við erum til staðar en við sjáum ekki meira en 5 sentimetra út fyrir okkar sjóndeildarhring.

Yoga þýðir frelsi frá okkar ávanbundnu hugsun, að strípa okkur algjörlega og lifa sem nakinn með galopnum huga. Þegar við erum algjörlega strípuð af okkar litla egói, ég um mig þá verður hin líðandi stund hafsjór af tærri vitund.


-------------------------------------------------------------------------------------



Hatha Yoga hefur tvö gífurlega mikilvæg hlutverk.

Númer eitt að gera okkur mjög líkamleg, við erum jú öll með líkama en vitund okkar hvílir ekki svo mikið í líkama, úthverft ástand hugans gerir það að verkum að við dveljum í okkar ytra umhverfi og í okkar hugsunum. Í Meðvituðu Yoga þá köllum við þetta Öndunarlíkaminn, aðalatriðið með iðkun er að hafa okkar eigin vitund eins og akkeri í eigin líkama.

Númer tvö er að opna fyrir miðlínuna. Þetta er hin raunverulega merking Hatha Yoga þegar við beinum okkar vitund að miðlínunni sem liggur inn við mænu og heila. Þetta ástand kallast Prana Sthiti eða stöðugleiki hinnar innri orku. Sóaðu ekki tíma þínum í að ná lengra heldur opnaðu eigin vitund fyrir miðlínunni, í Meðvituðu Yoga þá köllum við þetta hinn hreini hugur, hið óendanlega innra rými sem fyllir allt, hið innra rými er aðeins eitt, óbundinn kærleikur til alls sem er.
Lifið heil og opin


----------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------

Ég las pistil um daginn þar sem yogakennari skrifaði um vissar stellingu, aðalatriðið í þessum skrifum var, að þegar einstaklingur hefur náð þessari stellingu þá muni hugurinn vera í kyrrð.
Ég verð að skrifa um þetta því mér finnst þetta mjög sorgleg nálgun á mér einstakri aðferðafræði sem Yoga er.
Til að byrja með þó svo að þú náir einhverju líkamlegu formi þá mun þetta ekki færa þér nein ríkidæmi í formi aukinnar orku eða öðlast einhverja sérstaka innri hæfileika.
Yoga var og verður aðferðafræði þar sem þú getur horfst í augu við þitt eigið líf og sjálfan þig. Þegar við horfum í augu við okkur sjálf, hvað sjáum og hvað gerum við í því að breyta því.
Yoga þýðir hið raunverulega frelsi frá okkar ávanabundnu hegðun eða hugsun, svo Yoga er aðferðafræði innra frelsis, þar sem ég frelsa sjalfan mig undan oki minnar ávanabundnu hugsunar/hegðunar sem að mestu leyti er algjörlega ómeðvituð.
Mig langar ekki að hljóma eins og einhver sem þykist vita allt um Yoga, en þegar ég les svona pistla þá bærist eitthvað innra með mér, væntanlega mitt eigið egó/ávanabundin hugsun. 
Ég set mynd af Mandela til að minna okkur á sannan Yogi í orðsins fyllstu merkingu, sá sem lifði sem umbreytti lífi sínu, hann hefði getað valið reiði og biturð á sinni fangelsis dvöl en hann valdi frið og kærleik, þetta er hin sanna Yogaleið 
Lifið opin og heil

Aðventu ferð með Mömmu og Dóru í sveitina.

Mamma og Dóra komu með mér austur í húsmæðraorlof. Hér erum við að fá okkur morgunmat.

Ég, Máni og Móna fórum í nokkra göngu túra í fallegu vetrar veðri.

Jólalegt í Laugarási.

Ég og Dóra vorum að stússat í eldhúsinu og bökuðum meðal annars hafrakökur.

Fallegar og góðar hafrakökur, uppskritf sem ég fékk frá Marioline.

London 28. nóv - 1. des 2013

Á Yo sushi
Ég skellti mér til London í langa helgi. Gisti á Z Hotel sem er í Soho. Alltaf gaman að koma til London.
Fór á Sýningu eat, pray and laugh farewell show Barru Hunphries  sen leikur Dame Ednu. 

Kikti inn á einn bar…… eða  tvo :-)

Frá sýningunni eat, pray and laugh farewell show Barru Hunphries.


Frá sýningunni eat, pray and laugh farewell show Barru Hunphries.

Ég sjálfur á leið á Yo