Friday, January 23, 2015

Matarboð hjá Önnu Siggu og Pétri. 17. jan 2015.

Anna Sigga og Pétur buðu okkur og Lilju og Reyni í mat til sín. Frábært  kvöld og góður matur. Hér er forrétturinn sem var grænmeti sem maður skar sjálfur niður að eigin vali og maður útbjó dressingu úr ólifuoliu, sítrónu og salti til að dýfa í. Frábær forréttur, öðruvísi og léttur. Svo var svart pasta með hörpudisk og lauk og galdurinn við laukin var að elda hann á lágum hita í 2 tíma þá verður hann svo sætur. Svo var súkkulaðikaka með rjóma í eftirrétt.

Anna Sigga, Reynir, Maggi, Lilja og Pétur. Það áttu allir að koma með eitt atriði. Maggi var með Pub quiz, Reynir var með vínsmökkun, Lilja var með pistil um borgarstjóra í Kananda sem er köttur, Pétur fór með ljóða á narbuxunum og Anna Sigga lét okkur lesa ljóð úr ljóðabók sem er hennar uppáhald og ég flutti tvö ljóð. Mjög skemmtilegt kvöld í alla staði.


No comments:

Post a Comment