Saturday, February 28, 2015

Fimmtugsafmæli Auðar Páls í safnaðarheimili Háteigskirkju.

Auður Páls hélt upp á afmælið sitt þann 21. feb í safnaðarheimili Háteigskirkju. Rosa flott og skemmtileg veisla með frábærum veitingum og skemmtiatriðum.

Guðmundur bróðir Auðar sá um tónlistarflutning með vinum sínum og gerðu þau það mjög vel og skemmtilega.

Gugga systir Auðar hélt ræðu í bundnu máli sem var mjög flott.  Eitt sem ég man úr ræðunni var setningin: " Kennari og landafræði hún gerði það bæði" sem er svo lýsandi fyrir Auði.

Guðmundur bróðir Auðar og vinir hans að flytja lag tileinkað Auði.

Maggi og Vala.

Ég og Auður.

Það var virkilega gaman að hitta allt fólkið og marga sem ég var ekki búinn að hitta í langan tíma.

No comments:

Post a Comment