Thursday, April 16, 2015

Lóan er kominn.......12. april 2015

Sáum Lóuna í fyrsta skipti þetta vorið......

og við héldum upp á það með því að baka pönsur með alles :-)

Matarboð í Hvannalundi með Gunna S og Röggu Grétars og mökum

Fengum Röggu og Guðbrand, Gunna Sig og Hörpu í mat til okkar föstudaginn 10. april. Alltaf gaman að hittast.

Maggi, Harpa, Guðbrandur, Ragga og Gunnar Sig.



Við vorum með andarsallat í forrrétt og svo Cesarsallat í aðalrétt og svo  hvíta súkkulaði mús í eftirrétt.

Hvít súkkulaðimús með jarðaberjum og lime


Súkkulaðimús úr hvítu súkkúlaði með lime-marineruðum jarðarberjum er ágætis endir á góðri máltíð. Þessi uppskrif er fyrir fjóra.
Fyrsta skrefið er að búa til súkkulaðimúsina:
  • 100 gr. hvítt súkkulaði
  • 2 dl rjómi
  • 1 egg
Aðferð:
  1. Þeytið rjómann.
  2. Bræðið súkkulaðið yfir vatnsbaði.
  3. Þeytið eggið
  4. Hrærið egginu og bráðnu súkkulaðinu saman
  5. Blandið rjómanum saman við
Setjið músina í fjórar skálar og geymið í ísskáp í að minnsta kosti fjórar stundir. Hægt er að gera músina daginn áður og geyma í ísskáp yfir nótt.
Næsta skref er að marinera jarðarberin:
  • 1 box jarðaber
  • 2 msk. Akasíuhunang
  • 1 lime
Rífið börkin af lime-ávextinum. Pressið safann. Blandið saman hunangi, lime-safa og lime-berki.
Skerið jarðarberin í bita og marinerið í 4 klukkustundir.
Til að klára réttinn eru skálarnar teknar úr ísskápnum. Jarðarberjabitunum er dreift á skálarnar og um matskeið af safanum sett í hverja skál.

Páskar í sveitinni 1. -6. april 2015


Fórum í mat til Hreins og Ingibjargar á föstudeginum langa. Þar voru lika Flóra, Erna, Raffi, Kjartan og Ólöf kærasta hans.
Fengum Tvíreykt hangikjöt í forrétt og saltfisk sem var inni í fínskornum kartöflum í aðalrétt og svo súkkulaði
köku sem ég kom með og ostaköku sem sem Ólöf kom með :-)



Svo komu þau öll til okkar auk Lofts í Brunch á páskadag, alltaf gaman að vera
saman og að fá að hitta alla krakkana




Máni, Hreinn, Ingibjörg og Flóra.


Stuð og stemming..

Matarklúbbur hjá Guðný og Þorra 28. mars 2015



Matarklúbbur hjá Þorra og Guðnýu. Tók fáar myndir og þá aðalega af mér og Gillu og Stjána. 



Fengum Halloumi grillaðan ost með rækjum í forrétt og svo Kalkún með alles í aðalrétt, Sukkulaði köku í eftirrétt.

Ég var að segja að Gilla myndaðist svo vel en hún var ekki alveg sammála mér ;-)

Gaman hjá okkur með eftirréttinn.