Friday, June 12, 2015

Frábær helgi 21.-23. maí


Eidi og Lísa komu til okkar á leið sinni austur á Höfn í Hornafirði. Gaman að hitta þau og fengum okkur hádegismat saman.


Ég bakaði þessa Norsku Teköku sem gerði mikla lukku.

200 gr.smjörlíki
             200 gr hveiti
200 gr. sykur
2 egg
2 tesk lyftiduft
kókósmjöl,ég hrúga bara slatta út í deigið
sennilega einum og hálfum bolla

Einn botn bakað á 180ca í 20 mín

Kremið er 
Flórsykur sennilega  um 200 gr (mæli aldrei)
2 matsk.kakóduft
blandað með kaffi 
bara tvær matskeiðar  til að byrja með 
svo það verði ekki of þunnt.
skreitt með kókós mjöli,ef vill.


Það var frábært veður um helgina þó svo að það hafi farið að blása þegar leið á helgina

Sólbað.........

já þetta er í Bláskógarbyggð :-)

No comments:

Post a Comment