Friday, December 25, 2015

Brunch á aðfangadag :-)

 Yndislegur dagur. Vöknuðum og gerðum yoga og fórum í pottinn. Tókum til í skápunum í herbergjunum eins og góðar húsmæður gera fyrir jólin :-) Fórum svo í góðan göngutúr í skíta kulda og komum svo heim og fórum aftur í pottinn að ná upp hita. fengum okkur svo síld, pate , lax og fleyra.
Undurbjuggum svo matinn fyrir kvöldið, rjúpur með alles. Vorum svo í kósý stemmingu hér í sveitinn.

Máni og Móna.

Maggi hýr á brá.......




Jólabrunch á Vox 19. des

Hreinn, Ingibjörg, Maggi og ég fórum á Vox í jólabrunch. Mjög gott og gaman. Gengum svo niður í bæ og kiktum í búðir og bari. Virkilega skemmtilegur dagur.

Hreinn og Ingibjörg á Nordica. 

Saturday, December 19, 2015

25 atriði fyrir heilsu og hamingjusamt líf.



1. Gerðu æfingar í 30 mín á hverjum degi.
2. Dekka 8 glös af vatni á hverjum degi.
3. Borðaðu morgunmat eins og kongur, hádegismat eins og prins og kvöldmat eins og betlari. 
4. Borðaðu meira af fæðu sem vex á trjám og plöntum, borðaðu minna af tilbúnum mat. 
5. Lifðu eftir þrem E : Energy (orka) Enthusiasm ( áhuga) og Empathy ( samúð )
6. Gefðu þér tíma til að biðja og í sjálfsskoðun.
7. Að leika sér, stunda yoga, forðast salt, ekki drekka gosdrykki. 
8. Lestu meira.
9. Sittu í þögn í að minstakosti 10 mín á dag.
10. Sofðu allavega 7 tíma.
11. Farðu í 10- 30 mín göngu hvern dag og brostu á meðan þú gengur.
12. Ekki bera þig saman við aðra. Þú veist ekki neitt um hvað þeirra líf snýst um.
13. Timi læknar allt.
14. Ekki taka þig of alvarlega : enginn annar gerir það.
15. Ekki eyða þinni dýrmætu orku í slúður.
16. Öfund er tímasóun, þú hefur allt sem þú þarft.
17. Lífið er of stutt til að hata einhvern. Ekki hata aðra.
18. Finndu frið fyrir því liðna svo það spilli ekki því að lifa í dag.
19. Engin getur skapað hamingju fyrir þig, nema þú sjálfur. 
20. Hversu sem aðstæður eru góðar eða slæmar, það mun breytast. 
21. Mundu að þú er svo blessaður að þú þarft ekki að vera stressaður.
22. Vertu í sambandi við fjölskyldu þína.
23. Gerðu eitthvað fyrir aðra á hverjum degi.
24. Hvað öðrum finnst um þig kemur þér ekki við.
25. Lífið er ekki réttlátt, en samt gott, Njóttu þess.

Þýtt frá : Happy-Childhood


Sunday, December 13, 2015

Frábær helgi 10.-13. des

Notaði helgina til að baka og dúlla mér á meðan að Maggi fór til London. Yndislegt veður og fallegt.

Bakaði Sörur og Norska Teköku.

Slappaði svo af á milli og kikti í sjónvarpið m.a á Loga í Beinni.

Svo fékk ég gesti sem buðu mér í Toddy á pallinum og var ég búinn að undirbúa komuna en þorði ekki annað en taka mynd í birtu til vonara og vara :-)

Hreinn og Ingibjörg í kósy par exelance á pallinum, með geggjað  toddy sem Ingibjörg bjó til. Rosa kósy að sitja úti og njóta útsýnisins. 

Fórum í Brunch á Slippbainn 5. des

Ég, Vala og Maggi fórum á Slippbarinn í Jóla- Brunch. Æðislega gaman og  gott . Fórum svo í bæinn og kiktum í búðir og jafnvel fleyri bari en búðir :-) 

Jólatónleikar í Salnum með Önnu Mjöll og Svanhildi.

Fórum á tónleika með Önnu Mjöll og Svanhildi í Salnum í Kópavogi. Fórum fyrst á B5 í jólabjór og svo á Sushi train við hliðina á hótel Borg og svo á tónleikana. Rosa gaman og skemmtileg kvöldstund og enduðum á Catalínu í loka drykk :-)