Sunday, May 22, 2016

Næturhimininn aðfaranótt 22. maí 2016.

Vaknaði upp um miðnætti og þá var svo stillt og fallegt og máninn var fölbleikur.

Máninn og sést í Eyjafjallajökul.



Vörðufell 21. maí 2016

Fundum þetta gæsaegg (holdum að þetta sé gæsaegg ) hér á túninu fyrir framan hjá okkur , svo þegar við komum aftur þá var búið að færa það til um 200 m og svo þegar við fórum í göngu eftir matinn þá fundum við það ekki. Það var alveg kalt þegar við fundum það fyrst. 

Maggi og Móna á leið á toppinn.

Við gengum alveg upp á hæsta stað á Vörðufelli og sáum yfir úlfsvatn og yfir Hestfjall. Einnig yfir landið og miðin. 

Maggi og Ulfsvatn í baksýn.

Séð yfir að Ingólfsfjalli og yfir Grímsnesið og Grafninginn.

Hestfjall fyrir miðju.


Sunday, May 15, 2016

10 hlutir sem gott er að sleppa til að verða hamingjusamur.



10 hlutir sem gott er að sleppa til að verða hamingjusamur.

1.Slepptu takinu á fólki sem eitrar í kringum sig í lífi þínu. 
2. Slepptu taki á mistökum fortíðarinnar.
3. Hættu að þurfa alltaf að hafa rétt fyrir þér.
4. Hættu að vorkenna sjálfum þér.
5. Hættu að tala neikvætt um sjálfan þig.
6. Slepptu takinu að vera háður því að fá aðdáun annara.
7. Slepptu takinu á takmarkandi viðhorfum.
8. Slepptu takinu á að þurfa þóknast öllum.
9. Hættu að slúðra og kvarta.
10. Hættu að hafa áhyggjur af framtíðinni.

Saturday, May 14, 2016

Miðfell 14. maí 2016

Fórum í göngu með Hreini og Ingibjörgu á Miðfell hjá Flúðum.

Frábær dagur og gott veður. Hér erum við í kaffi pásu.

Ég og Móna.

Hreinn og Ingibjörg.

Miðfellsvatn.

Vörðufell í baksýn.

Enduðum heim hjá okkur í Bruch/lunch Ingibjörg gerði geggjað sallat með reyktu hrefnukjöti og heimatilbúinni  sósu  og ég gerði pizzur og svo auðvitað rósavín.....

Heimsókn til Mömmu.

Móna elskar að fá að hitta mömmu, hér er hún búin að sleikja allt krem sem mamma var með á sér :-)

Mirabai Ceiba 30. maí 2016

Fór á tónleika með Mirabei Ceiba í Ljósheimum, frábærir tónleikar. Gaman að fá að hitta þau í þriðja sinn. 

Ótruglega flott og fagleg.

Til umhugsunar


Mynd tekin af I. Kjartansdóttir á Miðfelli 14. Maí  2016.
  • Hefur þú leitt hugann að þvi í dag frá þvi þú steigst á fætur, hvað þetta er fallegur dag

  • Hefur þú horft í augun á þeim sem þú hefur átt samskipti við nú í morgunsárið og séð viðkomandi?!

  • Hefur þú sagt eitthvað fallegt, gefið hrós þótt dagurinn sé rétt að byrja.

  • Hefur þú brosað í dag.

  • Hefur þú staldrað við, dregið djúpt andann og þakkað fyrir?!

  • Hefur þú litast um í kringum þig og virkilega meðtekið umhverfi þitt.

  • Hefur þú farið út úr þínum eigin þannkagangi og velt þvi fyrir þér hvernig þeir sem í kringum þig
          hafa það. 

  • Hefur þú heilsað frá hjartanu í dag.

  • Hefur þú hugsað jakvæðar og fallegar hugsanir.

  • Hefur þú sagt einhverjum hvað hann er þér mikilvægur.

  • Hefur þú gefið sjálfum þér athygli og hlýju. hrós.
Við höfum öll þetta magnaða vald að geta haft áhrif á okkar eigin hugsanir, liðan og þá orku sem við sendum frá okkur.
Gerum alltaf okkar besta, gerum alltaf ráð fyrir þvi að allt fari vel og að lífið leiki við okkur.
Við erum öll eitt svo komum fram við hvert annað af virðingu, ást og þakklæti.
Það sem við sendum frá okkur kemur alltaf til baka.


Iris Anandraj Kaur.