Mynd tekin af I. Kjartansdóttir á Miðfelli 14. Maí 2016. |
- Hefur þú leitt hugann að þvi í dag frá þvi þú steigst á fætur, hvað þetta er fallegur dag
- Hefur þú horft í augun á þeim sem þú hefur átt samskipti við nú í morgunsárið og séð viðkomandi?!
- Hefur þú sagt eitthvað fallegt, gefið hrós þótt dagurinn sé rétt að byrja.
- Hefur þú brosað í dag.
- Hefur þú staldrað við, dregið djúpt andann og þakkað fyrir?!
- Hefur þú litast um í kringum þig og virkilega meðtekið umhverfi þitt.
- Hefur þú farið út úr þínum eigin þannkagangi og velt þvi fyrir þér hvernig þeir sem í kringum þig
- Hefur þú heilsað frá hjartanu í dag.
- Hefur þú hugsað jakvæðar og fallegar hugsanir.
- Hefur þú sagt einhverjum hvað hann er þér mikilvægur.
- Hefur þú gefið sjálfum þér athygli og hlýju. hrós.
Við höfum öll þetta magnaða vald að geta haft áhrif á okkar eigin hugsanir, liðan og þá orku sem við sendum frá okkur.
Gerum alltaf okkar besta, gerum alltaf ráð fyrir þvi að allt fari vel og að lífið leiki við okkur.
Við erum öll eitt svo komum fram við hvert annað af virðingu, ást og þakklæti.
Það sem við sendum frá okkur kemur alltaf til baka.
No comments:
Post a Comment