Sunday, June 18, 2017

MA Reunion 2017 á Akureyri.

Fórum norður í reunion hjá Magga. fórum á miðvikudeginum 14. júni og þá hittist árgangurinn á Götubarnum um kvöldið. 

Við fórum á Kaffi Amor þegar við komum og fengum okkur einn kaldan.

Alltaf gaman að koma norður.

Áður en við hittumst á Götubarnum þá fórum við á Rub 23 með Gyðu, Ásmundi, Agli og Önnu Guðný. 



Anna Guðný og Egill. 

Ég og Ásmundur. 


Á fimmtudeginum 15. júni þá var farið í ferð um Eyjafjörðinn og endað með grilli og balli á Freyvangi.  Ég fór ekki í þá ferð en var að dóla mér á Akureyri. Fór m.a í ræktina ( ÁTAK ) og í sund og svo að versla og fékk mér sushi :-)

Svo var aðlaveislan í Höllinni 16. júni og var hist á undan á Icelander Hótelinu í fordrykk.
Skemmtilegir dagar :-) 










Sitges 24. maí til 3. júní 2017.

Skelti mér einn til Sitges, alltaf gott að koma þangað ( heim). 

Byrjaði alla daga á að fara út og ganga 7-8 km  og svo morgunmatur áður en ég fór á ströndina að slaka og lesa.

Ég var á Calipolis og fékk mjög gott herbergi sem snéri beint út á ströndina.

Svalirnar voru frábærar og gaman að horfa á mannlífið þaðan. 

Morgunyoga einn daginn. 

Útsýnið af svölunum.

Svo fór ég á hverjum degi í lunch og fékk mér sushi. 

Og líka alltaf seinnipartinn þá var G&T. 

Skemmtileg ferð og hlakka til að koma þangað aftur :-)

Matarklúbbur hjá Snorra og Kristínu 20.maí 2017.

Matarklúbbur hjá Snorra og Krístínu. Mjög skemmtilegt kvöld og gátum við sitið úti í fordrykk.  

Guðný og ég.

Gilla og Guðný.

Snorri kokteilmeistari og hann átti sök á því að ég fór ekki heim fyrr  en langt var komið fram á nótt :-)

Skálað í Aperroll útí á palli 

Sjávarréttarforéttur.
Önd og meðlæti, ótruglega góð. 

Snorri og Gilla. 

Vorið í sveitinni 2017

Vorið í sveitinni er búið að vera einstaklega skemmtilegt. Gaman að fylgjast með gróðrinum koma upp og sjá  allt fuglalífið hér. Hér er Vala í heimsókn hjá okkur og fórum við í göngu niður á Hvítá með Mána í vagninum eftir að hann fór í aðgerð á krossbandi í fæti. 

Veðrið er búið að vera mjög gott og gaman að sitja úti á palli og njóta :-)

:-)

Hreinn og Ingibjörg komu í sódavatn með Flóru einn daginn. 

Hreinn og Ingibjörg komu í sódavatn með Flóru einn daginn. 
Jaðrakan.
Móna að kikja.
Svo erum við búnir að vera að fylgjast með uglunni.

Svo er lóuhreiður hér rétt hjá og þarna er komið eitt egg en svo bættust tvö önnur við, gaman að fylgjast með lóunni passa hreiðrið.


Snorri og Kristín komu í heimsókn einn daginn en gleymdi að taka mynd þannig að hér er ein af þeim á góðri stundu.