Monday, August 7, 2017

Verslunarmannahelgin 2017

Fórum í göngu á Miðfell á Fimmtudeginum fyrir verslunarmannahelgina í góðu veðri. 

Dúnalogn á toppi Miðfells.


Miðfellsvatn.

Svo á föstudeginum fyrir verslunarmannahelgina þá gengum við á Mosfell.

Útsýni yfir Bláskógabyggð.

Máni og Móna á toppi Mosfells.


Selfy.

Svo á laugardeginum þá fórum við með Hreini og Ingibjörgu á Vörðufell . Fengum veglegar veitingar í hlíðinni fyrir ofan Úlfsvatn. Kjúklingasallat, brauð, rækjusallat og bjór og fleira.
Úlfsvatn á toppi Vörðufells.

Góður hópur á góðri stundu. 


Eftir gönguna þá var okkur boðið í freyðivín og kókosköku á pallinum í Brennigerði.

Skál......

Smá photo shop.

Veðrið um helgina hefur verið alveg frábært, sól og logn.


Gönguferð á Búrfell :-)

Ætluðum að ganga á Búrfell en breyttum því og ætluðum að ganga á Hestfjall í staðinn því það
var ekkert skygni á Búrfelli. En þegar við vorum hálfnuð upp á Hestfjall þá fór að þykkna upp og við settumst niður og fengum okkur hressingu ( Koníakshlaup) en það varð bara meira og meira skýjað svo við snérum við og fórum bara í Kaffi og köku á Sólheima :-)

Bjór, ostur, koníakssulta og nýbakað brauð í hlíðum Hestfjalls :-)

Svo hress......


Gulrótarkaka og kaffi í Sólheimum.

Buðum svo okkur í kvöldmat og gistingu hjá Hreini og Ingibjörgu. Fengum freyðivín og jarðaber í Brennigerði fyrir matinn.

Fengum veislu-máltíð, Crispy duck, grænmeti og svo ísrétt að hætti húsins.

Virkilega skemtilegur dagur og kvöld, 



Ég, Vala, Hreinn, Ingibjörg og Maggi.

Ég, Vala, Hreinn, Ingibjörg og Maggi.

Nýjar tröppur og blómabeð á pallinum

Við erum búnir að vera að laga til þar sem við gönum inn í húsið og smíðuðum nýjar tröppur og nýtt blómabeð með bekkjum.

Nýju tröppurnar.


Allt í vinnslu,
kominn blóm í beðið. 

Máni og Móna að dást að handverkinu :-)

Nokkuð sáttir með útkomuna.