Monday, August 7, 2017

Verslunarmannahelgin 2017

Fórum í göngu á Miðfell á Fimmtudeginum fyrir verslunarmannahelgina í góðu veðri. 

Dúnalogn á toppi Miðfells.


Miðfellsvatn.

Svo á föstudeginum fyrir verslunarmannahelgina þá gengum við á Mosfell.

Útsýni yfir Bláskógabyggð.

Máni og Móna á toppi Mosfells.


Selfy.

Svo á laugardeginum þá fórum við með Hreini og Ingibjörgu á Vörðufell . Fengum veglegar veitingar í hlíðinni fyrir ofan Úlfsvatn. Kjúklingasallat, brauð, rækjusallat og bjór og fleira.
Úlfsvatn á toppi Vörðufells.

Góður hópur á góðri stundu. 


Eftir gönguna þá var okkur boðið í freyðivín og kókosköku á pallinum í Brennigerði.

Skál......

Smá photo shop.

Veðrið um helgina hefur verið alveg frábært, sól og logn.


No comments:

Post a Comment