Fórum til Sitges, ég í þriðja skiptið í sumar og Maggi í annað :-) Alltaf gott að koma þangað og vorum við núna á Calipolis sem er alltaf mjög notalegt. |
Allt eins og það á að vera ;-) |
Prufaði nýjan drykk á Parrots sem heitir Moscow Mule, sem er Vodka, lemmon og Ginger beer. Ferskur drykkur og borinn fram í þessum fína koparbolla. |
Fórum líka á Fragata í Lunch og það klikkaði ekki frekar en fyrridaginn. Hér er forrétturinn minn foie gras. |
Hér er forrétturinn hans Magga sem voru risarækjur á sultuðum lauk með rukola. |
Fengum okkur sitthvorn forréttinn og sitthvorn aðalréttinn með einni vínflösku á þessum frábæra stað og borguðum við 90 evrur fyrir allt, það var dýrasta máltíðin í ferðinni. |
No comments:
Post a Comment