Hreinn, Ingibjörg og Guðrún komu til okkar eftir hádegi og áttum við góða stund með veitingum og drykk. Svo Kom ólafur Laufdal og sótti okkur og við fórum í jólahlaðborð á Grímsborgum. Mjög gott og huggulegt. Svo kom Gunni Þórðar og Þorsteinn Eggertson ásamt föruneiti og voru með söngskemmtun sem var mjög skemmtileg. ólafur Laufdal keyrði okkur svo heim að þessu loknu. Hreinn, Ingibjörg og Guðrún gistu hjá okkur sem var mjög gaman og vorum við svo með brunch með öllu um morguninn. Tungukokteilar klikka ekki að skappa stemmingu. |
No comments:
Post a Comment