Wednesday, January 30, 2013

Lífsreglurnar fjórar:

Lífsreglurnar fjórar:
1. Vertu flekklaus í orði: talaðu af heilindum. Segðu aðeins það sem þú meinar. Passaðu að nota ekki orðið gegn þér eða til að slúðra um aðra. Beindu krafti orða þinna í átt að sannleika og kærleika.
2. Ekki taka neitt persónulega: ekkert sem annað fólk gerir er þín vegna. Það sem aðrir segja og gera er speglun af þeirra eigin veruleika, þeirra eigin hugarástandi. Þegar þú hættir að taka skoðanir og gjörðir annarra nærri þér, verður þú ekki lengur fórnarlamb ónauðsynlegrar vanlíðunar.
3. Ekki dragar rangar ályktanir: hafðu hugrekki til þess að spyrja spurninga og til að biðja um það sem þú raunverulega vilt. Hafðu samskiptir þín við aðra skýr svo þú komist hjá misskilningi og sárindum. Þessi eina lífsregla getur breytt lífi þínu.
4. Gerðu alltaf þitt besta: þitt besta mun breytast á hverju andartaki við ólíkar aðstæður. Burtséð hverjar kringumstæðurnar eru, gerðu einfaldlega alltaf þitt besta og þú munt hætta að fordæma, fara illa með þig og fyllast eftirsjá.

Úr bókinni Lífsreglurnar fjórar eftir Don Miguel Ruiz. Bókin er byggð á lífsspeki Tolteka-indíána.

Áttu yndislegan dag!

Saturday, January 26, 2013

Skyndi-endurnæring




Skyndi-endurnæring


Það getur verið átak að sleppa gömlum ósiðum sem þjóna okkur ekki.  Þá er mikilvægt að setja nýjar og jákvæðar venjur í staðinn. Þá getur verið gott að byrja smátt og byrja á einni nýrri venju sem nærir okkur og styrkir. Og þannig komum við okkur smám saman upp seríu af venjum sem styðja okur í að næra okkur og velja það sem lyftir okkur upp. Hér á eftir fylgja nokkrar hugmyndir að daglegri iðkun – sem ekki þarf að taka langan tíma – þrjár mínútur á dag gera heilmikið gagn.  Þegar við komum okkur upp einni nýrri venju þá fylgja margar í kjölfarið.
Í kundalini jóga er mælt með að velja sér eina hugleiðslu og gera á hverjum degi í 40 daga.  Ef maður missir úr einn dag þá byrjar maður upp á nýtt.  Þannig er líklegra að við höldum okkur við þessa nýju venju án þess að missa úr dag.  Það er nefnilega þannig að um leið og svona ný venja eins og hugleiðsla er rofin þó ekki sé nema í einn dag – þá eru meiri líkur á að við hættum alveg.  Því gamli veruleikinn okkar er svo fljótur að taka aftur yfir.
En hér eru nokkrar hugmyndir til að velja úr:
1. Baksveigja.  (Kamelreið).  Sittu með krosslagða fætur.  Gríptu um ökklana með báðum höndum.  Andaðu að, sveigðu bakið fram og ruggaðu þér fram á setbeininu.  Andaðu frá, sveigðu bakið aftur og ruggaðu mjöðmum aftur.  Haltu höfðinu beinu og handleggjum nokkuð beinum og slökum.  1-3 mín
2. Víxlöndun -settu þumalfingur á hægri nös og andaðu inn um vinstri nös, og settu svo baugfingur / vísifingur á vinstri nös og andaðu út um hægri.  Og svo áfram: inn um hægri og út um vinstri og svo áfram til skiptis. 1-3 mín. 
3. Eldöndun er ein af undirstöðum kundalini jóga. Hún er gerð með því að pumpa naflanum inn og út og anda um leið nokkuð hratt um nefið.  Sittu bein-n í baki og lyftu upp í brjóstið. Andaðu inn og niður í kviðinn og andaðu frá og kipptu naflanum snöggt inn og upp.  Þegar þú hefur náð góðri þjálfun í eldöndun er hún gerð frekar hratt og snöggt. Eldöndun hreinsar lungu, slímhimnu, blóð og aðrar frumur. Hún víkkar lungnaþanið og eykur lífsorku. 1-3 mín
4. Hugleiðsla fyrir friðsælt hjarta - 
5. Strekkjarinn.  Liggðu á bakinu með handleggina með hliðunum.  Lyftu höfðinu og fótunum 15 sm frá gólfi, lófarnir vísa saman yfir lærum með 15 sm millibili til að byggja upp orku yfir naflapunktinum.  Réttu úr tánum, horfðu á og yfir tærnar og gerðu eldöndun.  1-3 mín. Strekkjarinn gefur okkur aðgang að orkuuppsprettunni sem við geymum á naflasvæðinu – svo við þurfum ekki að ná okkur í gerviorku til að koma okkur í gang – eins og til dæmis með því að fá okkur kaffi eða sykur.  Öflugur nafli kennir okkur rétta líkamsstöðu og færir okkur sjálfstraust og sjálfsaga.

25. jan

Fallegt í sveitinni, það snjóaði og allt varð fallega hvítt.

Máni 15. daga gamall

Við fórum og kiktum á hann Mána okkar sem fæddist fyrir hálfum mánuði, 10. jan.  Hér er Maggi og Máni.

Gunnar og Máni

Hneta mamma hans mána.


Hneta, Máni og systir hans að slaka á 

Máni að kúra hjá mömmu.

Thursday, January 24, 2013

Til umhugsunar.

Vissir þú að þeir sem eru sterkastir eru oftast þeir sem eru viðkvæmastir? Vissir þú að þeir sem sýna mestu góðvildina eru þeir sem fyrst er traðkað á? Vissir þú að þeir sem stöðuglega annast aðra eru oftast þeir sem þurfa mest á umönnun að halda? Vissir þú að það þrennt sem er erfiðast að segja er: Ég elska þig; Fyrirgefðu; og Viltu hjálpa mér? Þó svo að einhver virðist hamingjusamur þarftu stundum að líta fram hjá brosinu hans og sjá hversu mikinn sársauka hann er að ganga í gegnum.

Tuesday, January 22, 2013

Máni 11 . daga gamall með systur sinni og Mömmu.þ


Vertu meistari huga þíns


Vertu meistari huga þíns

Hugleiðsla er tími með okkur sjálfum, til að endurnærast, finna kyrrðina hið innra og hlusta á sálina.
Tími til að hlusta, finna aftur taktinn innra með okkur og gefa heiminum fyrir utan frí á meðan.
Hugleiðsla er eins og að fara í bað, hún hreinsar undirvitundina, beinir athygli okkar inn á við, inn í andartakið og færir okkur frið.
Í hugleiðslu styrkjum við hlutlausa hugann.
Sterkur hlutlaus hugur gefur okkur vængi til að lyfta okkur upp yfir tilfinningasveiflur og erfiðar ákvarðanir - svo við getum betur tekist á við áreiti og erfiðleika.
Hugurinn er okkar mikilvægasti félagi. Við þurfum að vera í sambandi við hugann okkar til þess að  blómstra og lifa hamingjusömu lífi.
Hugleiðsla í Kundalini jóga er mjög aðgengileg og gefur okkur fljótt djúpa tengingu inn á við. 

Friday, January 4, 2013

Leið jógans



Leið jógans er að verða eins og stöðugt fjallið, eða kyrrlát lindin, minna og minna háður ytra umróti, en um leið meðvitaðri um hvert andartak. Tökum ábyrgð á eigin heilsu og styrkjum okkur á líkama og sál! Tíminn er núna. Þú til að vera ÞÚ!
          

Hér eru 10 boðorð sem við fengum hjá Guðbjörgu Finnsdóttur íþróttakennara.


Það er alltaf auðveldara að byrja á hollum háttum í byrjun árs en svo er það galdurinn að halda þeim áfram. Mikilvægt er að hafa þetta ekki of flókið. Einföldum hlutum er auðveldara að halda áfram.


1. Vatn!

Drekktu vatn. Fáðu þér vatnsglas um leið og þú vaknar, áður en þú borðar sama hvort það er millimál eða aðalmál.

2. Hreyfing

Hreyfðu þig reglulega, ef þú ert byrjandi þá er gott að setja sér fastan tíma 3 x í viku. Síðan finnum við þörfina til að vilja meira. Settu þessa tíma í forgang því mikilvægt er að líkaminn nái að venjast nýjum venjum vel.

3. Morgunmatur

Hafragrautur á morgnana er ávallt gott val. 1 dl Tröllahafrar í pott og 3 dl af vatni soðið og hellt yfir 1 msk hveitiklíð, 1 tsk kanill og ber. Getur ekki klikkað.

4. Spínat

Spínatbomban kemur brennslunni í gang, þú færð tvöfalda orku og finnur hollustan beint í æð. 2 lúkur spínat, 3 cm engifer, 1 pera, ½ glas af goji berja safa og ½ glas vatn, klaki og blandarinn.

5. Engifer

Sjóða brytjað engifer og sítrónu í vatni. Bæta teskeið af hunangi út í og þetta getur verið allra meina bót.

6. Toppárangur

Hollur matur, hreyfing og hvíld þarf að haldast í hendur til að ná toppárangri.

7. Svefn

Svefnin er lykilatriði til að líkaminn nái að vinna úr öllum dásemdunum og gerir okkur falleg og orkumikil fyrir daginn.

8. Jákvæðni

Jákvætt hugarfar gerir allt auðveldara og árangursríkara. Það á við um lífið sjálft og heilsuna að sjálfsögðu líka.

9. Þakklæti

Ræktaðu andlegu hliðina og hugsaðu hvað líkaminn er stórkostlegt fyrirbæri og þakkaðu fyrir að hann geti hreyft sig. Þakkaðu fyrir heilsuna.

10. Út fyrir þægindarammann

Stefndu hærra, náðu lengra, afrekaðu meira – vegna þess að þú getur það!
Gangi þér sem allra best!

Samskipti frá Thich Nant Hanh


Ef við skoðum djúpt hugmyndina um að allt er tengt ( innter-being er kennig í buddisma sem segir að allt tengist) munum við hætta að ásaka (ásaka aðra, ásaka aðstæður,ásaka allt yfirleitt) þræta og drepa aðra. Við myndum vilja vera vinur allra.
Til að þjálfa sig í friðsemi-umburðalyndi, verðum við fyrst að læra að höndla okkur sjálf friðsamlega með virðingu.
Ef við sköpum gott jafnvægi með okkur sjálfum, þá mundum við vita hvernig við höndlum fjölskyldu okkar, vini og samfélag.

- Thic Nath Hanh, frá "For a future to be possible.

3. jan. 2012

Álftir að fljúga yfir Hvítá.
Hvítá og Vörðufell.

Skálholtskirkja í baksýn.


Skálholtskirkja í fjarska.

Tuesday, January 1, 2013

Nýársganga 2013

Ég og Vala fórum og gengum Skálholtshringinn og ég fór með nýbakaðar brauðbollur og gaf hestunum vinum mínum í tilefni dagsins.


Áramót í Laugarási

Fórum á brennu út á Höfðaveg.

Fallegt veður og mikið af fólki






Kaffi í sveitinni.

Fengum Flóru og fjölskyldu í kaffi til okkar og Tengdaforeldrar Ernu komu líka og fengu að skoða húsið okkar.