Lífsreglurnar fjórar:
1. Vertu flekklaus í orði: talaðu af heilindum. Segðu aðeins það sem þú meinar. Passaðu að nota ekki orðið gegn þér eða til að slúðra um aðra. Beindu krafti orða þinna í átt að sannleika og kærleika.
2. Ekki taka neitt persónulega: ekkert sem annað fólk gerir er þín vegna. Það sem aðrir segja og gera er speglun af þeirra eigin veruleika, þeirra eigin hugarástandi. Þegar þú hættir að taka skoðanir og gjörðir annarra nærri þér, verður þú ekki lengur fórnarlamb ónauðsynlegrar vanlíðunar.
3. Ekki dragar rangar ályktanir: hafðu hugrekki til þess að spyrja spurninga og til að biðja um það sem þú raunverulega vilt. Hafðu samskiptir þín við aðra skýr svo þú komist hjá misskilningi og sárindum. Þessi eina lífsregla getur breytt lífi þínu.
4. Gerðu alltaf þitt besta: þitt besta mun breytast á hverju andartaki við ólíkar aðstæður. Burtséð hverjar kringumstæðurnar eru, gerðu einfaldlega alltaf þitt besta og þú munt hætta að fordæma, fara illa með þig og fyllast eftirsjá.
Úr bókinni Lífsreglurnar fjórar eftir Don Miguel Ruiz. Bókin er byggð á lífsspeki Tolteka-indíána.
Áttu yndislegan dag!
Svo satt. Eigðu góðan dag líka Gunni :-)
ReplyDeleteTakk takk.
ReplyDelete