Vertu meistari huga þíns
Hugleiðsla er tími með okkur sjálfum, til að endurnærast, finna kyrrðina hið innra og hlusta á sálina.
Tími til að hlusta, finna aftur taktinn innra með okkur og gefa heiminum fyrir utan frí á meðan.
Hugleiðsla er eins og að fara í bað, hún hreinsar undirvitundina, beinir athygli okkar inn á við, inn í andartakið og færir okkur frið.
Í hugleiðslu styrkjum við hlutlausa hugann.
Sterkur hlutlaus hugur gefur okkur vængi til að lyfta okkur upp yfir tilfinningasveiflur og erfiðar ákvarðanir - svo við getum betur tekist á við áreiti og erfiðleika.
Hugurinn er okkar mikilvægasti félagi. Við þurfum að vera í sambandi við hugann okkar til þess að blómstra og lifa hamingjusömu lífi.
Hugleiðsla í Kundalini jóga er mjög aðgengileg og gefur okkur fljótt djúpa tengingu inn á við.

No comments:
Post a Comment