Sunday, September 29, 2013

Fallegir haustdagar 27.-29. sept 2013

Gengum í átt að Höfða í fallegu veðri. Fórum svo upp á hæðirnar fyrir ofan veginn og gengum til baka . 
Ég, Máni og Móna.

Fallegt að sjá landslagið frá öðru sjónarhorni, hér er horft að Skálholti.

Tekið í átt að Höfða.

Vörðufell í fjarska.

Heklan í fjarska.

Horft í átt að höfða.

Horft í átt að Vörðufelli og niður að Engi.

Fallegur haustlitur á Gljámisplinum.

Kirsuberjatéð í haustlitum.

Frábær réttur af lambakjot.is


Litríkt salat með lambalundum og hindberjasósu
Hráefni
400 g lambalundir
2 msk. olía
salt
nýmalaður svartur pipar
Steikið lundirnar í olíu á pönnu í 1-2 mín. á hvorri hlið. Kryddið
með salti og pipar og kælið. Skerið lundirnar í sneiðar og berið
fram með blönduðu salati og hindberjasósu.

Blandað salat:
1 poki blandað salat
2 msk. furuhnetur
2 msk. súrsað engifer
1/4 kantalópumelóna, skorin í strimla
20 hindber
Blandið öllu saman.

Hindberjasósa1 bolli hindber
2 msk. balsamedik
2 msk. hunang
salt
nýmalaður svartur pipar
1-1 1/2 dl olía
Leiðbeiningar
Setjið allt nema olíuna í blandara og maukið vel. Hellið olíunni út í mjórri bunu. Sigtið sósuna í skál.

Monday, September 23, 2013

Mánudagurinn 23. sept í sveitinni.

Gerði krækiberjasultur úr berjum sem ég týndi í hlíðum Vörðufells.

Sunnudagurinn 22. sept. 2013

Komum svo austur eftri matarklúbbinn og fórum í göngu í átt að Höfða.

Matarklúbbur hjá Guðnýu og Þorra.

Við fórum á augardagskvöld í Matarklúbb til Guðnýar og Þorra, frábært kvöld og meiriháttar matur. Við fengum Humarsúpu í forrrétta og svo mareneraða lúðu með grænmeti í millirétt og svo lambakjötsrétta með sallatti í aðalrétt og svo geggjaða súkkulaðiköku í eftirrétt.  Hér eru Snorri , Kristín; Gilla og Kristján.

Gilla, Stjáni og Maggi.

Gunnar og Snorri.



Snorri og Kristján.

Þorri að fá sér einn sopa áður en aðalréttur var borinn á borð :-)

Sólheimar 21. sept 2013

Fór fyrir hádegi í Sólheima þar sem Auður Bjarna var með síðustu helgina í kennaranáminu að þessu sinni. Hitti líka Eygló og Ester sem voru með mér í náminu á sínum tíma. Guru Dharam var kennari og gaman að heyra í honum. 


Saturday, September 21, 2013

Fallegt veður í sveitinni 21. sept. 2013

Já þetta er í sveitinni, þvílík fegurð.

Fullt tungl.

Það var hrím á pallinum í morgun.

Máni og Móna ætluðu aldrei að geta komið út úr slökunninni eftir jógað og hugleiðsluna.

Friday, September 13, 2013

Kundalini jóga gegn streitu og álagi



Kundalini jóga gegn streitu og álagi

Flest okkar erum að glíma við streitu og álag hvort sem það er heima fyrir eða í vinnunni. Streita birtist á ólíka vegu hjá okkur. Sumir verða kvíðnir, aðrir pirraðir, sumir fá vöðvabólgu og enn aðrir eru sífellt þreyttir. Streita veldur því að hugsanir fara að hringsóla í höfðinu og við hættum að geta einbeitt okkur. Hún hefur áhrif á meltinguna, hormónastarfssemina, ónæmiskerfið og hæfileika líkamans til að endurnýja sig. Í hraða og amstri dagsins er nauðsynlegt fyrir okkur öll að kunna aðferðir til að lifa með streitu.
Kundalini jóga er aldagamalt form af jóga og býður upp á virkar leiðir til að takast á við streitu og álag nútímans. Það getur verið erfitt fyrir okkur mörg að setjast niður og slaka á þegar búið er að vera mikið að gera og hugurinn er á flögri um víðan völl. Kundalini jóga byggir á taktföstum hreyfingum í takti við öndun og það er einmitt takturinn í æfingunum sem hjálpar huganum að sleppa streitunni og spennunni sem eru búnar að byggjast upp í annríkinu. Það er minni áhersla á teygjur og kyrrstöðu og meiri áhersla á að hreyfa við orkunni í gegnum öndun og takt. Hugleiðsla í kundalini jóga er mjög aðgengileg og gerir okkur kleift að hreinsa og kyrra hugann. Kundalini jóga getur hjálpað iðkendum að umbreyta neikvæðum hugsunum og mynstrum sem hindra þá í lífinu og koma sér upp heilbrigðari venjum og hugmyndum um sjálfa sig.
Jóga er nefnilega ekki bara eitthvað sem við gerum á jógadýnu. Það er í raun aðeins  undirbúningur fyrir lífið sjálft. Jógarnir segja að æðsta form af jóga sé hjónabandið og upplyftandi samskipti við okkar nánustu. Það sem hindrar okkur í því að vera í okkar besta formi eru ekki aðstæðurnar sem við búum í heldur okkar eigin hugur og innri takmarkanir. Hugur okkar býr yfir óendanleikum möguleikum. Við þurfum bara að þjálfa hann og rækta svo hann þjóni okkur. Þá getum við verið meistarar í eigin lífi. Og samfélagið hefur svo sannarlega not fyrir heilsteipta og sterka einstaklinga.

Saturday, September 7, 2013

Móna á hundasýningu sept 2013.

Móna var í öðru sæti í hvolpaflokki.

Stóð sig mjög vel og var eins og drottning í hringnum og fékk umsögn að henni þætti gaman að vera í hringnum .

Margir þaulvanir hundar og sýnendur voru á sýningunni

Karen sem kenndi mér á sýningarþjalfunninni.
Dómar að störfum og einn á sýningarpalli.

Sunday, September 1, 2013

Berjamó í lok ágúst.

Fórum í berjamó í gær og tíndum soldið af berjum. 

Maggi, Móna og Máni í fallegri brekku.



Krækiber.

Kósý í sveitinni.

Máni og Móna eru að verða átta mánaða. Hafa það kósý í sveitinni.

Geldingarnes.

Fórum einn fallegan dag í lok ágúst í göngu eftir vinnu út í Geldinganes. Gaman að koma þar aftur,  fórum svo oft þarna þegar við bjuggum í Grafarvogi.