Sunday, June 15, 2014

Löng og góð helgi 12. - 17. júni 2014

Bakaði brauð sem ég fann á netinu. Létt og gott.
Fljótlegt brauð á 30 mínutum600 ml volgt vatn
2 msk sykur
2 msk olía
3 msk þurrger
850 g hveiti
1 tsk lyftiduft
2 tsk salt
  1. Blandið saman í skál vatni, sykri, olíu og þurrgeri. Geymið í 10 mínútur.
  2. Bætið síðan hveiti, lyftidufti og salti saman við og hnoðið vel saman.
    Mótið bollurnar að eigin vali. Ef þið ætlið að baka brauðhleif, skiptið því í tvennt og látið ef til vill í brauðform. Bakið í 15 mínútur við 210°C.
  3. Gæðið ykkur á þessu dásamlega og bragðgóða brauði.

Fór svo í góða göngu hér í krimngum Laugaráss.

Fallegt verður þó svo að það hafi ekki verið sól.

Skálholt í fjarska.

Máni, Móna og Vörðufell ú fjarska.

Bakaði svo franska súkkulaðiköku með karmellusósu og pekannetum.

Kakan (einföld)
ca.80gr smjör
100 gr suðusúkkulaði
3 egg
3 dl sykur
1 tsk vanilludropar
1 ½ dl hveiti
1 tsk salt


  1. Stillið ofninn á 175°C (blástur)
  2. Bræðið saman smjörið og súkkulaðið
  3. Þeytið saman eggin og sykurinn
  4. Hveitinu og saltinu bætt varlega út í eggja/sykurblönduna.
  5. súkkulaðinu svo loksins bætt út í.
  6. Hellt í form og sett í 15 mínútur í ofninn.


Karamellusósan
60gr smjör
1 dl púðursykur
2 msk rjómi
1 poki pekanhnetur eða valhnetur (ég notaði Pekan hnetur)
100-150 g suðusúkkulaði, saxað


  1. Púðursykrinum og smjör brætt saman í pott.
  2. Þegar þetta er orðið vel blandað, bætið rjómanum út í og hrærið í ca. mínútu.
Kakan tekin út úr ofninum, Pekan hnetunum stráð yfir (grófsaxað - ég reyndar skellti þessu bara í blandarann í nokkrar sekúndur og muldi þetta þannig). Karamellusósunni hellt yfir og sett aftur inn í ofn í 20 mín.

Saxaði svo súkkulaði og stráði yfir kökuna þegar ég tók hana út.

Bar þetta fram með vanilluís og ferskum berjum (brómberjum, jarðaberjum, bláberjum, hindber)

Rabbabarakata 9. júni 2014

Fengum Hrein og Ingibjörgu í kaffi og ég bjó til Rabbabaraköku sem  Ingibjörg sagði mér frá. Frábærlega góð.
Hér er uppskriftinn.
Þessi uppskrift kemur frá Póllandi þar sem rabarbarar njóta mikilla vinsælda ekki síður en hér á Íslandi. Hún er jafneinföld að baka og hún er góð á bragðið.
Þetta þurfum við í kökuna:
  • 100 g smjör
  • 250 g sykur (2-2 1/2 dl)
  • 1 dl mjólk
  • 1 dl rjómasostur
  • 3 dl hveiti
  • 1 egg
  • 1 tsk lyftiduft
  • 4-5 rabarbarastilkir (látnir meirna svolítið í sykri)
Þeytið smjör og sykur saman. Bætið öðru hráefni nema rabarbaranum við og þeytið saman. Setjið deigið í form. Skerið rabarbarann niður í 2-3 sm langa bita og stingið þeim ofan í deigið.
Hitið ofninn í 175 gráður. Bakið neðst í ofninum í ca. 50 mínútur.


Saturday, June 7, 2014

Kóngulóavefir í sveitinni

Í morgun var þoka yfir öllu og þegar hún var að leysast upp og sólin að koma þá kom svo flottar aðstæður til að sjá kóngulóavefi sem maður sér annars ekki. Það var það mikið raki á vefunum og þegar sólin lýsti það upp komu vefirnir í ljós. Ótruglega magnað og flott að sjá. 










Friday, June 6, 2014

Máni og Móna ný klippt.





Máni og Móna fóru í klippingu í gær  og Máni var með svo mikinn  floka að það þurfti að  raka hann niður. 




Fengum góða gesti 31. maí - 1. júni


Vala, Nanna og Rudolf komu til okkar á laugardag og voru fram á sunnudag. Fengum okkur smá hressingu áður  en við fórum í góðan göngutúr. Komum svo heim og fórum í pottin áður en við fengu okkur að borða.


Nanna, Vala , Rudolf og Maggi.

Vala og Nanna á góðri stundu......


Erum að fá nýtt eldhús :-)

Erum búnir að rífa gömlu eldhúsinnréttinguna og fá pípara, rafvirka og mann til að flísaleggja. Erum að sparsla og svo málum við og fáum svo innrettinguna núna eftir hvítasunnu, það verður gaman.

Nýju flísarnar koma mjög vel út, gaman að sjá að þetta mjakast.