Sunday, June 15, 2014

Löng og góð helgi 12. - 17. júni 2014

Bakaði brauð sem ég fann á netinu. Létt og gott.
Fljótlegt brauð á 30 mínutum600 ml volgt vatn
2 msk sykur
2 msk olía
3 msk þurrger
850 g hveiti
1 tsk lyftiduft
2 tsk salt
  1. Blandið saman í skál vatni, sykri, olíu og þurrgeri. Geymið í 10 mínútur.
  2. Bætið síðan hveiti, lyftidufti og salti saman við og hnoðið vel saman.
    Mótið bollurnar að eigin vali. Ef þið ætlið að baka brauðhleif, skiptið því í tvennt og látið ef til vill í brauðform. Bakið í 15 mínútur við 210°C.
  3. Gæðið ykkur á þessu dásamlega og bragðgóða brauði.

Fór svo í góða göngu hér í krimngum Laugaráss.

Fallegt verður þó svo að það hafi ekki verið sól.

Skálholt í fjarska.

Máni, Móna og Vörðufell ú fjarska.

Bakaði svo franska súkkulaðiköku með karmellusósu og pekannetum.

Kakan (einföld)
ca.80gr smjör
100 gr suðusúkkulaði
3 egg
3 dl sykur
1 tsk vanilludropar
1 ½ dl hveiti
1 tsk salt


  1. Stillið ofninn á 175°C (blástur)
  2. Bræðið saman smjörið og súkkulaðið
  3. Þeytið saman eggin og sykurinn
  4. Hveitinu og saltinu bætt varlega út í eggja/sykurblönduna.
  5. súkkulaðinu svo loksins bætt út í.
  6. Hellt í form og sett í 15 mínútur í ofninn.


Karamellusósan
60gr smjör
1 dl púðursykur
2 msk rjómi
1 poki pekanhnetur eða valhnetur (ég notaði Pekan hnetur)
100-150 g suðusúkkulaði, saxað


  1. Púðursykrinum og smjör brætt saman í pott.
  2. Þegar þetta er orðið vel blandað, bætið rjómanum út í og hrærið í ca. mínútu.
Kakan tekin út úr ofninum, Pekan hnetunum stráð yfir (grófsaxað - ég reyndar skellti þessu bara í blandarann í nokkrar sekúndur og muldi þetta þannig). Karamellusósunni hellt yfir og sett aftur inn í ofn í 20 mín.

Saxaði svo súkkulaði og stráði yfir kökuna þegar ég tók hana út.

Bar þetta fram með vanilluís og ferskum berjum (brómberjum, jarðaberjum, bláberjum, hindber)

No comments:

Post a Comment