Sunday, June 15, 2014

Rabbabarakata 9. júni 2014

Fengum Hrein og Ingibjörgu í kaffi og ég bjó til Rabbabaraköku sem  Ingibjörg sagði mér frá. Frábærlega góð.
Hér er uppskriftinn.
Þessi uppskrift kemur frá Póllandi þar sem rabarbarar njóta mikilla vinsælda ekki síður en hér á Íslandi. Hún er jafneinföld að baka og hún er góð á bragðið.
Þetta þurfum við í kökuna:
  • 100 g smjör
  • 250 g sykur (2-2 1/2 dl)
  • 1 dl mjólk
  • 1 dl rjómasostur
  • 3 dl hveiti
  • 1 egg
  • 1 tsk lyftiduft
  • 4-5 rabarbarastilkir (látnir meirna svolítið í sykri)
Þeytið smjör og sykur saman. Bætið öðru hráefni nema rabarbaranum við og þeytið saman. Setjið deigið í form. Skerið rabarbarann niður í 2-3 sm langa bita og stingið þeim ofan í deigið.
Hitið ofninn í 175 gráður. Bakið neðst í ofninum í ca. 50 mínútur.


No comments:

Post a Comment