Saturday, August 9, 2014

Frábær dagur í sveitinni :-)

Ég og Vala fórum út að skokka í morgun í blíðskapaveðri......

Fórum svo í pottinn og þá bættist Maggi við í hópinn.

Fórum svo í göngu upp á Mosfell. Þetta er önnur fjallgangan hjá Mána og Mónu á einni viku og þeirra fyrstu fjallgöngur.

Maggi, Máni og Móna.

Ég og Vala.

Fórum svo í Dögurð í Braggakaffi. Alveg geggjað, frábær matur og gátum setið úti í góða verðinu.

Braggakaffi.

Silungur, heimabakað brauð, súrupestó, egg og beikon, bygg með krækiberjum, sallat með kartöflum, rabbabara og hvannarsaft.

Hjartasúkkulaði í desert. Mmmmmmm.

Mæli með braggakaffi, kaffihús og leirvinnustofa.

No comments:

Post a Comment