Saturday, October 31, 2015

Turmerikhunangsmauk.


Túrmerik toddý uppskrift.

Þetta róandi toddý mun hita þér inn að beini núna þegar sumar er búið og haust- og vetrarmánuðirnir komnir.
Engiferinn kemur sterkur inn, Túrmerik kemur með jarðargæðin og allskyns heilsukosti, hunangið mýkir hálsinn og sítrónan kemur jafnvægi á allt saman. Hægt er að gera Túrmerik hunangsmaukið fyrirfram, þannig að það er lítið mál að búa til toddýið á nokkrum mínútum.


Til að gera einn skammt- stór tebolli. (360 ml )
Safi úr hálfri sítrónu
1 teskeið rifinn engifer
2 matskeiðar af hunangstúrmerikmauki.
Fyllt upp með heitu vatni.

Túrmerikhunangsmauk:
1 bolli hunang
2 1/2 matskeiðar af túrmerik
Hrærið túrmerik og hunang vel saman. 
Geymið í krukku við stofuhita til að nota þegar hentar. 

Aðferð:
1. Sítrónu djús og rifinn engifer sett í bolla. 
2. Túrmerikmaukinu bætt útí.
3. Bæta við heitu vatni.
4. Hrærið, hrærið, hrærið……………………..


þýtt frá jógakennaranum Jason Crandell.

No comments:

Post a Comment