Monday, November 23, 2015

Matarklúbbur 21. nóv 2015 í Garðabæ hjá okkur.

Við vorum með jóla þema. Hlaðborð með öllu. Síld, lax. rækjur, pate, sallöt og fl. í forrétt og svo nautatungu,  bæjonsskinku, heitreikta gæs, kartöflusallat og waldorf og magt fleira. Svo var Ris ala mande í eftir rétt með kirsuberjasósu. 

Allt smakkaðist rosa vel og þá var epla og lauksallat sem stóð upp úr með síldinni.
100 gr majones, 100 gr. 18% sýrður rjómi, 1 epli (grænt) skorið í ltla teninga, 2 harðsoðin egg (hakkað eða saxað smátt), 1 saxaður laukur, 1-2 tsk. karrý (ég notaði 2 tsk.) og 1/2-1 msk. sykur. wink emoticon                                                               

Gilla, Kata, Kristín og Guðný.

Uppskrift af fylltum eggjum sem við gerðum.

12 stór egg harðsoðin, 1/2 dós sýrður rjómi, 2 tsk. Disjon sinnep, Cayennepipar á hnífsoddi, vorlaukur til skrauts, kapers. Eggin eru skorin í tvennt og rauðurnar fjarlægðar. Eggjarauðurnar eru stappaðar létt með gaffli áður en sýrða rjómanum, sinnepinu og piparnum er blandað saman við. Sett í sprautupoka og sprautað ofani hvíturnar og síðan skreytt með vorlauknum og kapers. Ég bjó lika til graflax sósu sem var æði. 1 dolla (lítil) majones, 2 msk. sætt sinnep, góður slatti af dilli (ég nota alltaf bara þurrkað), 1-2 msk. púðursykur, smá sósulitur (bara pínu lítið þannig að hún sé ljós ekki dökk) og þeyttur rjómi. Aðferð. Þeytir rjóma (bara pela eða minna) hrærir hinu hráefninu saman og blandar svo þeyttum rjómanum saman við blönduna. Ég gerði blönduna oft daginn áður til að láta hana taka sig en set þá þeyta rjómann bara samanvið daginn eftir) þetta eru svona ca. 4 msk. þeyttur rjómi eða bara eins og þér finnst best, smakkar bara til, sósan á að vera svona "fluffy" og létt smile emoticonsmile emoticonÉ´

Mikil stemming, Við vorum með Georges Duboeuf Beaujolais Nouveau rauðvín og svo jóla ákavíti að ógleymdum Tuborg jólabjór. 

Dóri, Guðný, Snorri, Maggi, Kristín og Þorri fyrir aftan Gillu og svo Kristján á endanum .

Kristín að taka mynd og svo Þorri, Gilla og Kristján.

Kubba steik hjá Völu 15. nóv 2015

Vala bauð okkur í sunnudags mat með Rudolf og Nönnu. Kubba steik með öllu :-) Rosa gott og flott boð. 

Fallegar vetrarmyndir úr sveitinni 12.- 15. nóv 2015









11. nóv 2015 - Bunk -bar

Fórum og hittum Svenna, Söndru og Guðmund og Hönnu Stínu í happy hour á Bunk bar. Gaman að hittast og skemmtilegt að fara í happy hour á virkum degi og fá sér létta rétti og vera kominn svo heim og sjá fréttirnar :-)

Önnur eins ............:-)

Saturday, November 14, 2015

Thick Nhat Hanh - Að brosa.


Thick Nhat Hanh - Að brosa.

Ég segi alltaf að brosa getur verið í reynd eins konar yogaæfing. Yoga fyrir munninn. Þú brosir bara þó þú finnir ekki fyrir gleði og þú munt sjá að þér kemur til með að líða öðruvísi. Stundum tekur hugurinn frumkvæðið en stundum þarf að leyfa líkamanum að hafa frumkvæðið.

Stundum leiðir andinn og stundum getur líkaminn leitt okkur. Þegar þú ert glaður þá brosir þú náttúrulega. En stundum er hægt að láta brosið koma fyrst. Þú brosir og þá tekur þú eftir að þú þjáist ekki eins mikið. Likamin getur verið leiðtoginn, ekki bara andinn. Ég legg til að þú reynir þetta þegar þú vaknar á nóttunni, það er alveg dimmt, þá anda og brosa. Brosa til lífsins, þú ert á lífi, brosa. Þetta er ekki bara kurteist bros, því enginn sér þig brosa. Samt að brosa því það er bros uppljómunar, það er gleði bros og þú finnur að þú ert á lífi.

Þannig að það er gott að æfa sig í að brosa. Ekki segja: Ég hef ekkert til að gleðjast yfir, hvers vegna þarf ég að brosa. Þegar þú er glaður og brosir þá ert þú ekki að æfa þig, það kemur náttúrulega. Þegar þú finnur ekki fyrir gleði og brosir, það er alvöru æfing. Veist þú að það eru eitthvað um 300 vöðvar í andlitinu, litlir og stórir. þegar við erum reið og áhyggjufull þá eru þessir vöðvar mjög stífir. Þegar þessir vöðvar eru stífir þá er spenna í andlitinu og fólk sér að þér líður ekki vel. Þú ert ekki eins og fallegt blóm. Fólk verður hrætt við þig þegar allir vöðvar í andlitinu eru stífir. Þú líkist frekar sprengju heldur en blómi. En ef þú þjálfar þig í að brosa þá breytist allt á einni sekúndu, allir vöðvar slakna og andlit þitt lítur aftur út eins og blóm. Það er dásamleg tilfining. 

Fengið úr bókinni - Thich Nhat Hanh, in "Healing is Possible Through Resting".
“heilun er möguleg í gegnum hvíld”
(Image: Claudia Tremblay)