Uppskrift af fylltum eggjum sem við gerðum.
12 stór egg harðsoðin, 1/2 dós sýrður rjómi, 2 tsk. Disjon sinnep, Cayennepipar á hnífsoddi, vorlaukur til skrauts, kapers. Eggin eru skorin í tvennt og rauðurnar fjarlægðar. Eggjarauðurnar eru stappaðar létt með gaffli áður en sýrða rjómanum, sinnepinu og piparnum er blandað saman við. Sett í sprautupoka og sprautað ofani hvíturnar og síðan skreytt með vorlauknum og kapers.
Ég bjó lika til graflax sósu sem var æði.
1 dolla (lítil) majones, 2 msk. sætt sinnep, góður slatti af dilli (ég nota alltaf bara þurrkað), 1-2 msk. púðursykur, smá sósulitur (bara pínu lítið þannig að hún sé ljós ekki dökk) og þeyttur rjómi. Aðferð. Þeytir rjóma (bara pela eða minna) hrærir hinu hráefninu saman og blandar svo þeyttum rjómanum saman við blönduna. Ég gerði blönduna oft daginn áður til að láta hana taka sig en set þá þeyta rjómann bara samanvið daginn eftir) þetta eru svona ca. 4 msk. þeyttur rjómi eða bara eins og þér finnst best, smakkar bara til, sósan á að vera svona "fluffy" og létt smile emoticonsmile emoticonÉ´ |
No comments:
Post a Comment