Sunday, July 24, 2016

Spóafjölskyldan sem er búin að vera hér hjá okkur :-)

Við höfum verið að fylgjast með spóunum og unganum þeirra. Fyrri myndin er tekin 10. júlí og síðari er tekin 24.júli. 

Hann hefur stækkað um helming á 14 dögum. 

Landmannalaugar 22. júlí 2016.

Skelltum okkur í dagsferð upp í Landmannalaugar. Alltaf gaman að koma þangað. Gengum aðeins um svæðið en það var frekar þungt yfir og blautt. 

Fengum okkur nesti við Ljótapoll.

Fallegt hraunið í Laugunum.

Fegurð.

Máni og Móna að bíða eftir að fá eitthvað að borða í nestispásunni.
Máni og Móna að kanna aðstæður.

Fullt af fólki að baða sig í lauginni.

Saturday, July 16, 2016

Helgin 15.-17. júlí 2016

Gengum á Mosfell frá Kirkjunni , mjög skemmtileg gönguleið og gaman að ganga niður í skóræktina sunnanmegin við Mosfell 

Kirkjan á Mosfelli.

Horft upp þar sem við gengum upp á Mosfell.


Fallegt klettabelti fyrir ofan kirkjuna.

Þessi litli spóaungi skaust yfir pallinn hjá okkur.

Þessi litli spóaungi skaust yfir pallinn hjá okkur.

Sunday, July 10, 2016

Gönguhópurinn Garpar og Gerplur í Holti í Önundafirði. júní 2016.


Ég fór með gönguhópnum mínum vestur í Holt í Öndunarfirði þar sem ég var í þrjár nætur  en hópurinn var í viku. Ég náði þrem skemmtilegum gönguferðum í frábæru veðri. Hér erum við að gera okkur klár að ganga á Kaldbak sem er hæsta fjall vestfjarða ( 988 ).
Á Toppi Kaldbaks. Dagur, Ragga, Mirra og Gríma í lausu lofti.

Svo gengum við frá Flateyri yfir á Suðureyri í Súgandafirði. Mjög skemmtileg ganga og góðir stígar. Fallegt útsýni á leiðinni.

Kaffi pása við fallegt vatn í Sunndal sem er dalur sem við gengum niður í Súgandafjörð.

Veðrið var svo gott að ég gat gengið ber að ofan og hópurinn er í kaffipásu  fyrir aftan, og sumir fóru út í vatnið.

Hópurinn að ganga upp úr Önundafirði.

Kaffipása á heiðinni milli Flateyrar og Suðureyrar.

Svo síðasta daginn þá fórum við og fengum leiðsögn hjá heimamanni um verkun á harðfiski og gátum keypt góðan harðfisk hjá honum. Hann sýndi okkur líka hjallana þar sem hann hengir upp harðfiskinn og fór líka með okkar á harðfisksafnið.
Eftir það fórum við á Ingjaldsand og hittum eina ábúandan í dalnum. Hún sagði okkur frá staðnum og hvernig væri að vera þar ein allan ársins hringinn. Hvað hún hefði fyrir stafni. Gaman að koma þarna og fá aðeins innsýn í þessa einangrun. 



Við gistum í Holti í Önundarfirði.

Ég var svo heppinn að Bogga og Tyggvi voru með þetta A hýsi og leyfðu mér að gista þar því þau sváfu inni í húsi en ætluðu að nóta það í ferðalagi eftir þessa þessari skipulögðu ferð var lokið. 
Hópurinn að skipuleggja daginn.



Hestfjall 2. júlí 2016




Við fórum í göngu á Hestfjall, byrjuðum gönguna hjá Vatnsnesi. Skemmtileg ganga og fallegt útsýni í allar áttir.

Vala, Maggi, Ingibjörg, Kristín, Snorri.
 Skemmtileg ganga og fallegt útsýni. 

Tilraun að myndartöku. 

Svo komum við heim til okkar og Snorri bauð upp á Bulldog Gin með Hibiscus út í . Mjög góður og ferskur drykkur, Hér er Hreinn búinn að bætast í hópinn.

Borðuðum svo saman lambafillet með alles og Pólska rabbabaraköku í eftirrétt. Frábærlega vel heppnaður dagur með skemmtilegu fólki. 

Saturday, July 2, 2016

Pallur fyrir framan hús. 1.júlí 2016

Tók mig til og byrjaði að smíða pall fyrir framan húsið hjá okkur. Mjög skemmtilegt og líka rosa munur.

Máni að kikja á smíðarnar.

Pallurinn að taka á sig mynd.

Mjög ánægður með þetta.

Snorri og Kristín komu í mat í Garðabæ 28. júní 2016


Snorri og Kristín komu í mat til okkar á miðvikudag og ég bauð upp á soft toco. Og svo gerði ég rabbabarapæ með ís og Rjóma. 

Snorri og Kristín með Magga.
Selfie.

Soft taco með kjúkling og nautahakki. Mmmmm

Snorri og Kristín gáfu okkur þennan fallega lakkrís úr versluninni Maí á Garðatorgi.