Monday, August 15, 2016

Fín helgi í sveitinni 12.-14. ágúst

Spóa fjölskyldan er búinn að vera mikið í kringum húsið okkar og nú eru ungarnir orðnir svo stórir að ég þekki þá ekki í sundur frá foreldrunum.



Fórum svo og hittum Hrein og Ingibjörgu í berjamó og sveppatínslu. Svo komu þau til okkar og Hreinn bjó til dýrindis bláberja mohito og Ingibjörg framreiddi veislumáltið, nautalund með alles, frábærlega gott og skemmtilegt kvöld.  Það var svo gaman að ég gleymdi að taka myndir í boðinu.
Bláberja mohito sem Hreinn gerði að sinni alúð og natni. Smakkaðist frábærlega.
Ég týndi c.a tvö kg af bláberjum og gerði bláberja hlaup í fyrsta skipti og tókst mjög vel.

3 comments:

  1. Mikið var ég heppin að komast í mynd hjá þér um helgina. Allur þumallinn vinstra megin komst á mynd og hálfur þumall hægra megin :-)

    ReplyDelete
  2. Hvernig gat það farið fram hjá mér að ég hafi tekið þessa fínu mynd af þér, þú myndast alltaf svo vel :-)

    ReplyDelete