Sunday, December 10, 2017

Kósý helgi í sveitinni 8.- 10. des

Róleg helgi í sveitinni. Gott veður og fallegt. 
Ég bakaði brúna lagkökur og sörur. 

Tókst ljómandi vel, var með uppskrift úr kökubók Hagkaups .


Veðrið var einstaklega fallegt og stillt.

Sólsetur yfir Ingólfsfjalli. 

Selfí :-)

Amma brúna :-)

Amma brúna og sörur.

London 30.nóv- 3. des 2017

Fórum til London í helgarferð og gistum á W á Leicester square. Mjög flott hótel og á góðum stað. Það var hefbundin dagskrá hjá okkur, sushi, shopping, græna sósan og einn og einn drykkur :-) Skemmtileg ferð og ekki spillti veðrið fyrir. 






Sunday, November 19, 2017

Jólahlaðborð í Grímsborgum 17. nóv 2017

Hreinn, Ingibjörg og Guðrún komu til okkar eftir hádegi og áttum við góða stund með veitingum og drykk. Svo Kom ólafur Laufdal og sótti okkur og við fórum í jólahlaðborð á Grímsborgum. Mjög gott og huggulegt. Svo kom Gunni Þórðar og Þorsteinn Eggertson ásamt föruneiti og voru með söngskemmtun sem var mjög skemmtileg. ólafur Laufdal keyrði okkur svo heim að þessu loknu. Hreinn, Ingibjörg og Guðrún gistu hjá okkur sem var mjög gaman og vorum við svo með brunch með öllu um morguninn. Tungukokteilar klikka ekki að skappa stemmingu.
Hreinn, Ingibjörg og Guðrún komu til okkar eftir hádegi og áttum við góða stund með veitingum og drykk. Svo Kom ólafur Laufdal og sótti okkur og við fórum í jólahlaðborð á Grímsborgum. Mjög gott og huggulegt. Svo kom Gunni Þórðar og Þorsteinn Eggertson ásamt föruneiti og voru með söngskemmtun sem var mjög skemmtileg. ólafur Laufdal keyrði okkur svo heim að þessu loknu. Hreinn, Ingibjörg og Guðrún gistu hjá okkur sem var mjög gaman og vorum við svo með brunch með öllu um morguninn. Tungukokteilar klikka ekki að skappa stemmingu.

Morgunverðarbrunchinn.

Kundalini kennaraútskrift í Sólheimum 10.-12. nóv 2017

Vorum helgina 10.-12. nóv í sólheimum. Þetta var loka helgi í kennaranáminu og var útskrift á sunnudeginum og þau fengu útskriftaskeirteinið afhent. Byrjuðum kl 6.00 á morgunana með Shadana og svo voru alskynd uppákomur, yoga , fyrilestrar, kakó-seromonía auk frábærs matar. Flott og skemmtileg helgi. 













Monday, October 30, 2017

Garpar og Gerplur í Vindáshlíð 27.-29. okt 2017

Gönguhópurinn minn Garpar og Gerplur fór í Vindáshlíð um helgina.  Var farið í tvær göngur á Miðfell og svo á Sandfell. Svo var haft það notalegt og borðaður góður matur. Hér erum við að setja upp fánann á Laugardagsmorgni.

Hópurinn á leggja á stað á Miðfell (363m). 

Selfi.

Horft yfir í Hvalfjörð af Miðfelli.

Horft yfir á Móskarðshnjúka af Miðfelli. 

Mikil mataraveisla var allan tímann. Hátíðarkvöldverður með rækjukokteil í forrétt og lax í aðalrétt og svo frönsk súkkulaðikaka í eftirrétt. 

Aðalréttur.

Ég var í morgunverðanefndinni, egg og beikon, ávextir og alles.


Morgunverðaborðið á sunnudeginum.

Frábær aðstaða í Vináshlíð og fallegt umhverfi. Á sunnudeginum gengum við á Sandfell (390m) sem er  fyrir ofan Vindáshlíð.

Vindáhlíð.

Sunday, October 8, 2017

Matarklúbbur 30. sept hjá Kötu og Dóra

Kata að taka mynd af okkur þegar við komum.

Gilla, Stjáni og Maggi.


Ég, Kata, Kristín, Þorri og Guðný.


Dóri að skenkja Masi víni sem stóðst svo sannalega væntingar. Fengum líka grafna gæsabringu í forrétt og hægeldaða nautalund í aðalrétt og svo frábæran vanillu eftirrétt með rjóma og alles. 

Svo voru tekin létt dansspor í lokin.


Sitges 12. - 21. sept. 2017

Fórum til Sitges, ég í þriðja skiptið í sumar og Maggi í annað :-) Alltaf gott að koma þangað og vorum við núna á Calipolis  sem er alltaf mjög notalegt. 


Fórum í göngur á morgnana í c.a 7-8 km, það var ekki orðið almennilega bjart fyrr en 7.30  þannig að við vorum oft að fara út milli 7.00 og 7.30  en í vor og sumar þá var alveg orðið bjart um 6.00 og þá vorum við alltaf komnir út fyrir 7.00 .


Allt eins og það á að vera ;-)

Prufaði nýjan drykk á Parrots sem heitir Moscow Mule, sem er Vodka, lemmon og Ginger beer. Ferskur drykkur og borinn fram í þessum fína koparbolla.

Fórum líka á Fragata í Lunch og það klikkaði ekki frekar en fyrridaginn. Hér er forrétturinn minn foie gras. 

Hér er forrétturinn hans Magga sem voru risarækjur á sultuðum lauk með rukola.


Fengum okkur sitthvorn forréttinn og sitthvorn aðalréttinn með einni vínflösku á þessum frábæra stað og borguðum við 90 evrur fyrir allt, það var dýrasta máltíðin í ferðinni.