Sunday, December 30, 2012

Matarboð með Pinho fjölsk.

Fórum í gær í matarboð til Ingibjargar og Hreins, en tengdaforeldrar hennar Ernu eru í heimsókn um jólinn hér á landi,  þau og Rafael sáu um matinn sem var ættaður frá Braselíu. Hérna er Ingibjörg( Vova sem þyðir amma) og Flóra.
Lærðum að segja Afi og Amma á portugölsku.

grandmother = vovó/avó
grandma = vó (as "vo" of voice")

grandfather = vovô/ avô
grandpa = vô (as "vo" of "vougue")






Erna, Flóra og Rafael.

Flóra.

Hreinn ( Vovó sem þýðir afi) og Flóra

Ingibjörg, Maggi , Fernado, Erna, Flóra, Rafael og Angela.


Skálholtshringurinn 28. des 2012

Skálholtshringurinn með smá útidúr 6.4 km og tíminn 1.10.25 

Friday, December 28, 2012

Jóga NIDRA



Jóga NIDRA 
Nidra þýðir svefn, en ólíkt svefni er Yoga Nidra meðvituð slökun. Í Yoga Nidra ferð þú í djúpt slökunarástand handan skilningarvitanna, þar sem engin streita býr og fullkomin eining ríkir. Þessi djúpa slökun getur hjálpað þér að losa um þær hindranir hugans sem draga úr þér í daglegu lífi. Þessi djúpa slökun hjálpar við að losa um streitu og hindranir hugans og færir okkur á djúp svið kyrrðar þar sem við endurnærumst á líkama og sál.
Gong slökun Gonghljóðfærið framleiðir litróf tóna sem byggja á ölduhljómum sem endurstilla líkama, huga og sál. Öldur gongsins eru öflugar og endurnæra taugakerfið, hvíla hugann og færa okkur djúpa slökun. Gongið hefur verið notað til lækninga í Austurlöndum um langa tíð.

Bæjarferð- sushi ferð :-)

Ég fór í bæinn milli jóla óg nýárs eina nótt því ég var að vinna einn dag, fór eftir að hafa þrifið stofunna á Saka-barinn og fékk mér alveg æðislegt sushi.



Fallegir dagar í sveitinni fyrir jólin.












Jólin 2012

Fórum í messu í Skálholt eins og vanalega. Hátíðlegt og fallegt. það var óvenju góð mæting miðað við oft áður, annaðhvort var það vegna þess hvað var gott veður eða út af einsöngvaranum Benedikt Kristjánsyni sem var afburða góður og söng vel.



Við vorum með skoskar rjúpur sem smökkuðust alveg frábærlega, samróma álit að þetta voru með þeim betri sem við höfum haft.

Jólalegt á aðfangadag.

Sítrónuvatn


Sítrónuvatn er allra meina bót og það er ekki bara fyrir sérvitringa eða jógakennara. Á vefnum MindBodyGreen kemur fram að sítrónuvatn geti bætt heilsu okkur svo um munar.
Það eru svona litlir hlutir eins og sítrónuvatn sem geta gjörbreytt lífi þínu. En það gerist náttúrlega ekki neitt ef þú gleymir því og gerir það bara stundum. Settu safa úr hálfri sítrónu í bolla og helltu sjóðandi heitu vatni út á. Hér fyrir neðan sérðu hvers vegna þú átt að gera þetta.
1. Styrkir ónæmiskerfið. Sítrónur eru ríkar af C-vítamíni sem eru góðar í baráttunni við kvef. C-vítamín styrkir vefi líkamans. 
2. Kemur jafnvægi á PH gildi. Sítrónur eru basískar hvort sem þú trúir því eða ekki. Af öllu nútímafæðinu sem við borðum (öllu hveitinu og sykrinum) verður líkaminn súr. Þess vegna þurfum við að leita leiða til að koma jafnvægi á PH gildið. Þess vegna er gott að drekka sítrónuvatn.
3. Hjálpar þér að grennast. Sítrónur eru með mikið af pectín-trefjum segja okkur að við séum södd. Auk þess hefur það verið sannað að þeir sem borða basískari mat eru fljótari að grennast. Að byrja daginn á sítrónuvatni kemur því jafnvægi á líkamsstarfsemina og ætti að hjálpa þér að halda þér á mottunni það sem eftir lifir dags.
4. Hjálpar til við eiturefnalosun. Heitt vatn örvar meltingarveginn og þarmaveggina sem gerir það að verkum að við losum eiturefni hraðar úr út líkamanum.
5. Virkar eins og náttúrulegt þvaglosunarlyf. Sítrónan hjálpar okkur að skola óæskileg efni út úr líkamanum og þvaglát verða tíðari sem gerir það að verkum að eiturefnin fara hraðar út úr líkamanum. Þvagfærin verða því enn heilbrigðari.
6. Hreinsar húðina. C-vítamínið minnkar hrukkur og minnkar bletti í húðinni. Sítrónuvatn hreinsar eiturefni úr blóðinu og hjálpar húðinni að verða eins falleg og hugsast getur.
7. Styrkir sogæðakerfið. Þessi bolli hjálpar þér að vökva hugann og kemur í veg fyrir ofþornun í nýrnahettunum. Þegar líkaminn er vökvaður verða nýrnahetturnar ekki lúnar sem gerir það að verkum að þú verður hressari og færð aukna orku. Það að drekka einn bolla af sítrónuvatni á dag getur gert róttæka breytingu á lífi þínu. Ekki láta það koma þér á óvart heldur njóttu þess.

Monday, December 24, 2012

Yogi Bhajan.


Það er ekki hægt að leysa ótta. Ekki reyna að leysa ótta.
Ekki leysa vandamál þín heldur slepptu vandamálunum. Farðu með óttan eins hátt upp og slepptu honum þar. 
-Yogi Bhajan


" þú getur kallað mig meistara, en ég ætla að segja þér sögu, Ég geri sadhana, það skiptir ekki máli hversu þreyttur ég er eða hversu upptekinn ég er og ég hef gert þetta í svo mörg ár. það er ekkert hús sem við getum kallað hreint nema það sé hreinsað reglulega. Það er enginn líkami sem getur haldið áfram án þessa að hreyfa sig og það er enginn hugur sem getur haldið áfram án þess að hugleiða."
-Yogi Bhajan.


Mynd tekin kl 11.30 á aðfángadag 23.12.2012.


Skýin koma fljótandi inn í mitt líf, ekki lengur til að færa mér rigningu eða boða komu storms, en þau færa mér liti í skýin þegar sólinn sest.
-Rabindranath Tagore