Sítrónuvatn er allra meina bót og það er ekki
bara fyrir sérvitringa eða jógakennara. Á vefnum MindBodyGreen kemur fram að
sítrónuvatn geti bætt heilsu okkur svo um munar.
Það eru svona litlir hlutir eins og sítrónuvatn
sem geta gjörbreytt lífi þínu. En það gerist náttúrlega ekki neitt ef þú
gleymir því og gerir það bara stundum. Settu safa úr hálfri sítrónu í bolla og
helltu sjóðandi heitu vatni út á. Hér fyrir neðan sérðu hvers vegna þú átt að
gera þetta.
1. Styrkir ónæmiskerfið. Sítrónur
eru ríkar af C-vítamíni sem eru góðar í baráttunni við kvef. C-vítamín styrkir
vefi líkamans.
2. Kemur jafnvægi á PH gildi. Sítrónur
eru basískar hvort sem þú trúir því eða ekki. Af öllu nútímafæðinu sem við
borðum (öllu hveitinu og sykrinum) verður líkaminn súr. Þess vegna þurfum við
að leita leiða til að koma jafnvægi á PH gildið. Þess vegna er gott að drekka
sítrónuvatn.
3. Hjálpar þér að grennast. Sítrónur
eru með mikið af pectín-trefjum segja okkur að við séum södd. Auk þess hefur
það verið sannað að þeir sem borða basískari mat eru fljótari að grennast. Að
byrja daginn á sítrónuvatni kemur því jafnvægi á líkamsstarfsemina og ætti að
hjálpa þér að halda þér á mottunni það sem eftir lifir dags.
4. Hjálpar til við eiturefnalosun. Heitt
vatn örvar meltingarveginn og þarmaveggina sem gerir það að verkum að við losum
eiturefni hraðar úr út líkamanum.
5. Virkar eins og náttúrulegt þvaglosunarlyf. Sítrónan
hjálpar okkur að skola óæskileg efni út úr líkamanum og þvaglát verða tíðari sem
gerir það að verkum að eiturefnin fara hraðar út úr líkamanum. Þvagfærin verða
því enn heilbrigðari.
6. Hreinsar húðina. C-vítamínið
minnkar hrukkur og minnkar bletti í húðinni. Sítrónuvatn hreinsar eiturefni úr
blóðinu og hjálpar húðinni að verða eins falleg og hugsast getur.
7. Styrkir sogæðakerfið. Þessi
bolli hjálpar þér að vökva hugann og kemur í veg fyrir ofþornun í
nýrnahettunum. Þegar líkaminn er vökvaður verða nýrnahetturnar ekki lúnar sem
gerir það að verkum að þú verður hressari og færð aukna orku. Það að drekka
einn bolla af sítrónuvatni á dag getur gert róttæka breytingu á lífi þínu. Ekki
láta það koma þér á óvart heldur njóttu þess.
No comments:
Post a Comment