Jóga NIDRA
Nidra þýðir svefn, en ólíkt svefni er Yoga Nidra meðvituð
slökun. Í Yoga Nidra ferð þú í djúpt slökunarástand handan skilningarvitanna,
þar sem engin streita býr og fullkomin eining ríkir. Þessi djúpa slökun getur
hjálpað þér að losa um þær hindranir hugans sem draga úr þér í daglegu lífi.
Þessi djúpa slökun hjálpar við að losa um streitu og hindranir hugans og færir
okkur á djúp svið kyrrðar þar sem við endurnærumst á líkama og sál.
Gong slökun Gonghljóðfærið framleiðir litróf tóna sem byggja á
ölduhljómum sem endurstilla líkama, huga og sál. Öldur gongsins eru öflugar og
endurnæra taugakerfið, hvíla hugann og færa okkur djúpa slökun. Gongið hefur
verið notað til lækninga í Austurlöndum um langa tíð.
No comments:
Post a Comment