Monday, June 17, 2013

17. júni í sveitinni

Gaman að það sé sumar og geta verið í garðinum.

Máni og Móna gera yoga með mér á morgnana  og eru mjög liðtæk í slökuninni.

Gerði frábæra pizzu, þar sem botninn er tortilla kaka.

Mér finnst alltaf ótrúlega mikil stemmning í tortillum.

Þær kæta alla og hver og einn getur ráðið því hvað fer á sína gleði-bombu. Þessi uppskrift er guðdómleg. Dásamlegt bragðið dansar út í eitt við bragðlaukana.
HRÁEFNI
  • 1 Tortilla-spelt
  • ⅓ bolli parmesan ostur
  • 1 msk. tómatsósa (Mér finnst sósan frá Rapzunel æði)
  • ½ msk. ólífuolía
  • 1 msk. sól-þurrkaðir tómatar
  • 1-2  hvítlauksrif, skorinn smátt
  • ½ rauðlaukur,  skorinn í þunnar sneiðar
  • jalapeno (má sleppa)
  • salt og pipar
AÐFERР
  1. Hitið ofninn í 180°c
  2. Olían smurð á tortilluna
  3. Smyrjið tómatsósu ofan á
  4. Kryddið með salti og pipar
  5. Parmesan ostur settur yfir
  6. Sól-þurrkaðir tómatar, hvítlaukur og rauðlaukur sett yfir ostinn
  7. Setjið bökuna á grind  og bakið í 6-8 mínútur, þar til brúnirnar eru fallega brúnar.

Berið gleðina fram með fersku salati. Þessi elska er tilbúin í alla gleði. Fullkomið að hella hvítu eða rauðu í glas og hafa með.


Gerði líka guðdómleg grænmetis lasagna.


No comments:

Post a Comment