Fékk þetta á netinu, gott að hafa í huga.
"Hugsaðu um þig og fjölskylduna. Finndu frið í þínu lífi, veldu þér fólk sem er ekki fullt neikvæðni og gremju. Hlustaðu á börnin þín, þau hafa margt til málanna að leggja.Láttu sem minnst reita þig til reiði. Haltu þig við gott fólk. Slökktu á sjónvarpi, síma, fjölmiðlum og farðu í 30 mínútna göngutúr á hverjum degi. Gefðu þér þinn tíma á þínum forsendum. Borðaðu ávexti og grænmeti. Forðastu ruslfæðið sem er fullt af sykri og salti. Hvítt hveiti og hvít hrísgrjón eru óholl. Borðaðu bara “alvöru mat”. Knúsaðu foreldra þína. Fáðu góðan nætursvefn.Ekki láta sjónvarpið stjórna því hvenær þú ferða að sofa.Veldu að lesa eina bók á mánuði. Komdu reglu á daglegt líf. Farðu að heimsækja ömmu um helgar þegar þér dettur ekkert í hug að gera.Og að er ódýrara að fara í sund en í bíó."
Veldu frjóa hugsun. Nýttu ímyndunaraflið þitt til góðra hluta. Þessi listi er bara hugmynd frá mér til mín og ykkar til að koma okkur af stað...
No comments:
Post a Comment