Sunday, August 23, 2015

12.- 16. ágúst 2015

Ég tók mér frí í vinnunni frá miðvikudeg og var í sveitinni og Maggi kom á föstudag. Við fórum meðal annars í Göngu á Langholtsfjall.  Skemmtilegt að ganga þar og fallegt útsýni. Hér er Maggi og tjaldstæðið Álfaskeið sem er í Langholtsfjalli í bak
Ótrúglega flott á það sé 13 ° kl 13.13 :-)

Séð yfir í Laugarás og Skálholt.

Gaman hjá Mónu og Mána

Stemming og stuð.

Fallegt útsýni til allra átta á toppnum. 

Falleg tun.

Álfaskeið nær og Vörðufell fjær.

Þegar við komum heim þá gerði ég grænmetis-lasagnia og bakaði gómsætt brauð.


Brauðbollur

Innihald

3/4 dl olía
1 og 1/2 dl mjólk
1 og 1/2 dl heitt vatn
1 msk sykur
1 tsk salt
5 tsk þurrger (1 bréf)
300 gr hveiti
100 gr heilhveiti

Bakstur
1. Taka frá 1 til 1 og 1/2 dl hveiti og geymið. Blanda saman öllum þurrefnunum ástam þurrgerinu.

2. Blanda saman vökva og olíu saman í aðra skál.

3. Hellið vökvanum saman við þurrefnin, sláið deigið og hnoðið og bætið við hveitinu sem var tekið frá í upphafi, eftir þörfum. Deigið á hvorki að klístast við borð né hendur.

4. Mótið fremur stórar bollur, penslið þær með mjólk eða sundurslegnu eggi. Síðan er gott að strá birkifræjum eða annars konar fræjum ofaná, eða jafnvel að rífa smá parmesan ost og strá hvítlaukssalti ofaná.

5. Bakið í ofni við 220°C í 10 mín.




No comments:

Post a Comment