Gulrótarmarmelaðið sem ég gerði heppnaðist ljómandi vel.
3 kg gulrætur 2 kg sykur 4 sítrónur
Gulræturnar eru mauksoðnar (endar teknir af þeim fyrst), látnar kólna og hakkaðar í matvinnsluvél. Sítrónurnar eru kreystar til allur safinn er úr þeim. Safinn geymdur, hýðið er hakkað fínt í matvinnsluvél. Öllu er svo blandað saman í pott og soðið þar til allt er vel sameinað.
Bon apetit.........
|
Æ hvað þetta lítur vel út :-)
ReplyDeleteTakk Takk, og gott :-)
ReplyDelete