Sunday, March 31, 2013

Páskamessa.

Ég og Vala fórum í messu kl 8.00 í Skálholtskirkju það sem sr. Egill  Hallgrímsson þjónað fyrir altari  og organisti var Jón Bjarnason.

Vala á leið í messu

Skáholtskirkja.

Það var guðfræðinemi sem aðstoðaði við messuna og altarinsgönguna.

Matarboð.


Fórunm í matarboð til Ingibjargar og Hreins í gær, Fengum heimatilbúna Önd, pönnukökur með hoisin sósu og plómusósu og grænmeti og líka eggjanúðlur með rækjum. Rosa gott og skemmtilegt kvöld.

Öndin sem var búið að undirbúa í þrjá daga.

Alúð og natni var lögð í matargerðina og það skilaði sér.

Nútímakvöld í sveitinni.


Saturday, March 30, 2013

Hamingjan.


Fólk fer mismunandi vegi í leit að hamingjunni. Bara vegna þess að einhverjir eru ekki á sama vegi og þú, þýðir ekki að þeir séu að fara í ranga átt eða hafi villst af vegi.
Dalai Lama.

Föstudagurinn Langi



SATURDAY, MARCH 30, 2013

Föstudagurinn Langi.

Mamma, Dóra, Ásgeir, Birkir og Gunnar Ásgeirs og svo Gugga, Auður, Hrafnhildur og Ingólfur og svo Vala komu í heimsókn og fengu smá hressingu. Mjög skemmtileg heimsókn og Máni og Móna voru alsæl með að hitta fólk

Gunnar Ásgeir, Birkir  og Mamma

Maggi að skera kjötið og Ásgeir.

Ásgeir, Vala og Dóra.

Móna.


Auður og Gugga. Auður kom með flottan pakka til Mána og Mónu, sem þau voru alsæl með.



Gugga og Hrafnhildur.

Gunnar Ásgeir og Birkir.

Hrafnhildur og Gugga.

Ingólfur.

Hrafnhildur, Gugga, Ingólfur og Auður.

Snorri og Kristín.

Snorri og Kristín komu í heimsókn á skírdag og fengu létt hádegiskaffi. Rosa gaman að fá þau í heimsókn og spjalla.

Thursday, March 28, 2013

Að hlaupa burt frá vandamálum


Að hlaupa burt frá vandamálum sínum er kapphlaup sem þú munt aldrei vinna! Þú getur ekki læknað það sem þú neitar að horfast í augu við.

Wednesday, March 27, 2013

Buddhist Boot Camp- to do list.


Gerðu lista yfir 10 atriði sem þú nýtur að gera, og gerður þau oft. Við gerum stöðugt lista yfir það sem við þurfum "að gera" og þá furðum við okkur á því hvers vegna það er engin gleði eftir í lífi okkar. Mundu alltaf að bæta við " að hafa gaman" á listann :)
Buddhist Boot Camp

Tuesday, March 26, 2013

Buddhist Boot Camp- vanþroski.


Vanþroski þýðir að vera enn í uppnámi í dag um eitthvað sem kom þér í uppnám í gær.

Máni og Móna svo sæl í sveitinni.





~Thich Nhat Hanh-bros.

Ég sat með hóp barna, og strákur sem heitir Tim brosti fallega. Ég sagði,"Tim þú ert með fallegt bros" og hann sagði  "þakka þér"   Ég sagði honum "þú þarft ekki að þakka mér, ég verð að þakka þér". Bros þitt gerir lífið fallegra. og í stað þess að segja "þakka þér" ættir þú að segja "Ekkert að þakka, það er velkomið"
~Thich Nhat Hanh

Góðvild.


Hvers vegna erum við oft dauðhrædd við breytingar, ókunnugar, nýjar eða óþekktar ? Hefur heimurinn ekki stöðugt sýnt okkur fegurð, einlægni og ást með hverri kynslóð? Erum við með svo mikla áherslu á myrkrið að við sjáum ekki lengur eða jafnvel munum ljósið?

Þetta er eins og "Never Ending Story" ef þú mannst eftir því, þar sem fólk hættir að trúa á veruleikan, hættir það að vera til.

Ást er raunveruleg, allt í kringum okkur. Það titrar góðvild með hverri athöfn, þjónusu, list, og fjölskyldu.

Sunday, March 24, 2013

Ingibjörg kom í heimsókn.

Ingibjörg kom í heimsókn og Máni og Móna voru hæstánægð með að fá hana í heimsókn.

Hugleiðsla


Til að æfa sig í hugleiðslu, er gott að horfa djúpt inn, það hjálpar okkur að takast á við ranga skynjun okkar á okkur sjálfum. Ef þú í gegnum hugleiðslu ert fær til að takast á við ranga skynjun getur þú verið frjáls frá þjáningum sem þær óhjákvæmilega valda. Það er ekki bara að þú sem miskilur þig og aðra, heldur aðrir miskilja sig og þig. Niðurstaðan er ótti, hatur, og jafnvel ofbeldi gagnvart hvert öðru.
Að takast á við þennan miskilning í gegnum hugleiðslu er eina leiðin til friðar.
~Thich Nhat Hanh

Friday, March 22, 2013

Máni og Móna komu í dag til okkar.

Ég sótti Mána og Mónu í dag og kom með þau austur. þau voru svo góð og sæt  í bílnum  í búri.

Móna að kanna nýja heimilið.


Máni sæti.




Máni og Móna.

Kominn í sveitina



móna

Maggi, Máni og Móna.


Vala Gríms fimmtug.

Fórum í afmæli til Völu sem hún hélt í Nauthól. Mjög skemmtilegt og flott veisla.  Nanna Friðriks vinkona Völu var veislustjóri og stóð  sig vel. Gugga vinkona var með flotta ræðu og svo kom Valgerður Guðnadóttir og söng fjögur  lög.

Gugga með skemmtilega ræðu.

Rannveig og Gugga.

Inga vinkona Völu og Vala.

Vinkonurnar Vala og Auður.

Inga og Rudólf.

Nanna veislustjóri stóð sig vel.

Vala í gír.

Sunday, March 17, 2013

Hamingjan.


Að bíða eftir því að einhver annar geri þig hamingjusaman er öruggasta leiðin til að vera dapur
Fengið úr bókinni,Buddhist Boot Camp.

The Dalai Lama


Ekki reyna að nota það sem þú lærir úr búddisma til að vera búddisti, heldur notaðu það til að vera betri en þú þegar ert. The Dalai Lama

Fengið úr bókinni, Buddhist Boot Camp.


Áður en við segjum eða skrifum eitthvað, skulum við spyrja okkur þriggja spurninga. Er það sem ég er að fara að segja satt? Er það nauðsynlegt? Er það til góðs? Ef það er ekki satt, nauðsynlegt eða til góðs, skaltu ekki segja það eða senda það eða skrifa það. Eftir smá tíma munt þú ekki einu sinni hugsa það.

Gerum þetta að nýjum vana og við stuðlum þegar í stað að heiðarlegum, einlægum og slúðurlausum heimi. Verum hluti af lausnum en ekki hluti af því sem mengar.


fengið úr bókinni,Buddhist Boot Camp.

Saturday, March 16, 2013

Máni og Móna í fyrsta skipti í sveitinni.


Máni og Móna komu í heimsókn til okkar í fyrsta skipti og koma svo alveg um næstu helgi.

Gott að vera kominn í sveitina aftur eftir skíðafríið og koma við í  Heiðmörk og fá egg og grænmeti og ekki verra að eggin eru frá landnámshænum.


Vorum í NY í þrjá daga.

Vorum í NY í þrjá daga, og fórum á nýjan söngleik Kinky Boots með lögum eftir Cindy Lauper. Mæli með honum. Fundum æðislegan sushistað Roby Foos sem er rétt við Times Square,  fórum á Haru sem er geggjaður sushistaður og bar í Greenwich village sem heitir Monster fyrir utan að hafa kikt aðeins í búðir. Frábær endir á góðu skíðafríi.

Hótelið okkar, Westin á Times Square.

Útsýnið út um gluggann á hótelinu.

NY



Útsýnið út um gluggann á hótelinu.

Saturday, March 9, 2013

Hittum Eida og Lísu á flugvellinum í Denver.





Eidi og Lísa komu út á flugvöll og hittu okkur. Við borðuðum saman og spjölluðum. Gaman að hitta þau og heyra hvað þau eru að gera.
Við vorum búnir að breyta ferðaáætlun og ætluðum að fara á laugardagsmorgun í flugi til NY í gegnum Denver í staðinn fyrir að keyra á sunnudegi til Denver.
Svo þegar við vöknuðum á föstudagsmorgni þá var verðurútlit slæmt fyrri laugardag þannig að við breyttum og fórum óvænt með tveggja tíma fyrirvara til Denver en þegar við vorum komnir þangað þá var seinkun á flugi til NY vegna veðurs þar. En vorum í sambandi við Eida og þau komu með stuttum fyrirvara því þau búa ekki langt frá flugvellinum í Denver. Við komumst svo til NY þar sem við verðum í þrjár nætur og fljúgum heim frá NY.
Það var eins gott að við gátum breytt þessu því við sáum að fluginu okkar sem við áttum að fara í á laugardagsmorgun var cancelerað :-)