Saturday, March 9, 2013

Hittum Eida og Lísu á flugvellinum í Denver.





Eidi og Lísa komu út á flugvöll og hittu okkur. Við borðuðum saman og spjölluðum. Gaman að hitta þau og heyra hvað þau eru að gera.
Við vorum búnir að breyta ferðaáætlun og ætluðum að fara á laugardagsmorgun í flugi til NY í gegnum Denver í staðinn fyrir að keyra á sunnudegi til Denver.
Svo þegar við vöknuðum á föstudagsmorgni þá var verðurútlit slæmt fyrri laugardag þannig að við breyttum og fórum óvænt með tveggja tíma fyrirvara til Denver en þegar við vorum komnir þangað þá var seinkun á flugi til NY vegna veðurs þar. En vorum í sambandi við Eida og þau komu með stuttum fyrirvara því þau búa ekki langt frá flugvellinum í Denver. Við komumst svo til NY þar sem við verðum í þrjár nætur og fljúgum heim frá NY.
Það var eins gott að við gátum breytt þessu því við sáum að fluginu okkar sem við áttum að fara í á laugardagsmorgun var cancelerað :-)

No comments:

Post a Comment