Sunday, April 28, 2013

Buddhist Boot Camp - Blóm


Blóm hættir ekki að vera fallegt bara vegna þess að einhver gengur framhjá því án þess að taka eftir því, né hættir að ilma ef lyktinni er tekið sem sjálfsögðum hlut. Blómið heldur áfram að vera glæsilegt, tígnalegt og stórkostlegt.
Móðir náttúra hefur veitt okkur þessa verðmætu kennslu sem blómin eru þrátt fyrir stuttan lífstíma, þau halda áfram að skína þó svo að við séum ekki að stara á þau, og trén sem taka því ekki persónulega þó svo að við gleymum að þakka fyrir súrefnið sem þau veita.
Við höfum líka ótrúlega og ótakmarkaða getu til að elska, en spurningin er: Getum við gert það eina og blóm. Án þess að vera dáð, dýrkuð eða verið tekið eftir okkur. Getum við opnað hjörtu okkar alveg í að gefa, fyrirgefa, fagna, og lifa glöð án þess að hika eða þurfa eitthvað á móti ?
Það virðist eins og stundum förum við út í að taka hlutina persónulega og hvort við séum metinn að verðleikum. Í raun erum við rúst, í sorg, reynum að verja okkur, halda aftur af okkur, með alls konar vernd og varnir. Við verðum særð, jafnvel reið, ef yfirmaður okkar tekur ekki eftir okkur, ef elskhugi dregur hönd sína í burtu, eða þegar vinur gleymir afmæli okkar. Getur þú ýmindað þér blóm draga sig til baka ef við lofum það ekki.

Gerum tilraun til að lýsa sama hvað gengur á, að elska skilyrðislaust og verða góð og blíð ( jafnvel þegar enginn sér).

Og jafnvel faðma næsta tré og segja:" Þakka þér !"

Allt hefur fegurð, en það geta ekki allir séð hana. - KONFÚSÍUS.
Ofangreint er kafli sem heitir "Ást er að viðurkenna fegurð" úr bókinni Buddhist Boot Camp með Hswkeye Timber.

Saturday, April 27, 2013

Hugleiðsla

Maggi tók mynd af mér, Mónu og Mána í hugleiðslunni í morgun.

Friday, April 26, 2013

Fyrsta skipti á Gréttó

Máni og Móna eru ánægð að fá að vera úti í garði að leika.


Kúra saman í búri, kósý.

Betra bara að vera á golfinu heldur en í fletinu.

Góð aðstaða fyrir M og M á Grettó



Gott að koma aftur í sveitina.

Máni og Móna kunna vel við sig hér í sveitinni.


Fullt túngl, mjög fallegt.

Speglast í Hvítá.

Tekin kl 11.00.

Þessi er tekinn kl 2.00  í nótt.

Fyrsti alvöru göngutúrinn í Sveitinni 26. april 2013

Fór í fyrsta alvöru göngutúrinn með Mónu og Mána. Gengum niður Hverabrekku og framhja Heiðmörk og svo aftur til baka upp Bæjarholtið og yfir túnið til baka. Þannig að þetta er allt að koma og ég get bráðum farið að fara í góða göngutúra með þau.






Síðasti vetrardagur 24 . april 2013

Vöknuðum í sól og blíðu en fsvo fór að snjóa kl 7.00 og  jörð var  alhvít.

Máni og Móna voru mjög sátt við snjóinn.


Fengum svo hópinn sem við vourm með í haustí Sitges  í mat til okkar . Gaman að hittast aftur og rifja upp skemmtilegan tíma.

Sunday, April 21, 2013

Tuesday, April 16, 2013

Buddhist Boot Camp

AGI: er það sem vantar í lif þitt til að skilja á milli lífsins sem þú hefur og lífsins sem þú villt ?
-Buddhist Boot Camp

Monday, April 15, 2013

Matarklúbbur 13. april hjá Snorra og Kristínu.

Maggi, Gunnar og Móna. Máni er í felum fyrir aftan Magga.

Snorri, Kristín og Þorri.

Guðný og Þorri.

Gilla og Stjáni.

Guðný og Kata.

Gunnar og Halldór.

Kata og Maggi.

Saturday, April 13, 2013

Morgunkaffi hjá Svövu í Garðabæ.

Fór í morgunkaffi til Svövu og Kristbjörg kom yfir með Prins með sér.

Svava og Bangsi.

Kristbjörg og Prins.

Máni lék við Prins og Bangsa allan tíman en var svo alveg búin á því í lokin, en Mónu fannst betra að vera bara í fanginu á mér allan tíman og var ekki neitt gefið um þetta strákaflóð.

Wednesday, April 10, 2013

Thich Nhat Hanh gems


Raunverulegan styrk er ekki að finna í völdum, peningum, eða vopnum. En við finnum hann í djúpum frið.
Þegar við höfum góða innsýn, lendum við ekki í mörgun erfiðum aðstæðum.

Thich Nhat Hanh gems

Buddhist Boot Camp

Ef ég er í uppnámi, þá er ég vandamálið.
-Buddhist Boot Camp

yoga.

Yoga sem vísindi hefur 6 krama eða þætti

1. Þróun (Shristi)
Þeir sem vilja þróa líkama, öndun eða huga
2. Fullkomnun (Shiksana)
Þeir sem vilja ná líkamlegri eða öndunar fullkomnun 
3. Fyrirbyggjandi/viðhalda (Rakshana)
Þeir sem vilja iðka til að forðast hnökra lífsins og halda sér frá 
óþarfa viðgerðum
4. Uppljómun (Adhyaatmika)
Fyrir þá sem helga líf sitt að finna tilgang og uppruna alls lífs
5. Þerapía (Chikitsa)
Þeir sem glíma við sjúkdóma eða einhverskonar ójafnvægi hvort
sem það er í líkama eða huga
6. Eiginleika (Siddha)
Þeir sem vilja þróa með sér einstaka eiginleika eins og kærleika,
samúð, skyggni, heilun........

Yoga er hægt að iðka á mörgum forsendum og forsendurnar fara eftir hver á í hlut.
Hvar ert þú í þessum skala?

Tuesday, April 9, 2013

Máni og Móna.

Hvað varst þú að gera ?


Gott að kúra saman.

Kósý.

Stemming og stuð út í móa.

Stemming og stuð út í móa.

Stemming og stuð út í móa.

Stemming og stuð út í móa.