Monday, April 1, 2013

22 atriði sem hamingjusamt fólk gerir öðruvísi


Það er stundum sagt að það séu tvær tegundir af fólki til. Þeir sem kjósa að vera hamingjusamir og þeir sem kjósa að vera það ekki. Hamingja er nefnilega ekki eitthvað sem þú vinnur í Lottó eða færð í launaumslaginu. Hamingja er lífsstíll sem fólk kýs sér með því að horfa öðruvísi á hlutina, lifa lífinu hamingjusamt.
Til þess eru nokkrar leiðir og hér förum við yfir nokkur atriði sem hamingjusamt fólk tileinkar sér.
1. Ekki erfa hlutina
Hamingjusamt fólk veit að það er betra að fyrirgefa og gleyma. Ellegar gæti neikvæð orka ýtt í burtu jákvæðri líðan. Ef þú erfir hlutina við einhvern aðila veldur það streitu, jafnvel depurð og kvíða. Hvers vegna að láta einhvern sem hefur gert þér eitthvað hafa þetta vald yfir þér, stjórna þér?
2. Koma vel fram við alla
Það hefur víst verið vísindalega sannað að góð framkoma við annað fólk veldur aukinni hamingju. Í hvert sinn sem þú framkvæmir óeigingjarna hluti framleiðir heilinn hormón sem heitir Serotonin sem dregur úr streitu. En þetta er ekki það eina jákvæða við góða framkomu því það byggir einnig upp góð sambönd við annað fólk.
3. Horfa á vandamál sem áskoranir
Orðið vandamál á ekki að finnast í orðabók þess hamingjusama. Vandamál er eitthvað neikvætt, eitthvað sem dregur fólk niður – þarf að kljást við. Áskorun eða verkefni felur í sér að þurfa að kljást við eitthvað, takast á við eitthvað spennandi. Virkar svo miklu betur.
4. Vertu þakklát/ur fyrir það sem þú hefur
Það er til máltæki sem hljómar einhvern veginn svona „Hamingjusamasta fólkið á ekki mest af öllu, það gerir bara best úr öllu því sem það á.“ Það veldur endalausri neikvæðni og óánægju ef orkan er sett í að sækjast eftir hlutum í stað þess að vera ánægð með það sem við höfum.
5. Láttu ekki litlu hlutina trufla þig
Spurðu þig hvort þetta vandamál eða verkefni skipti einhverju máli eftir eitt ár. Lífið er of stutt til að láta litlu hlutina trufla sig.
6. Hugsaðu stórt
Ef þú hugsar stórt, lætur þig dreyma stóra drauma ertu mun líklegri til að láta eitthvað af því rætast.
7. Talaðu vel um aðra
Að vera góð manneskja veldur betri líðan en að vera slæm manneskja. Segir sig sjálft eiginlega. Eins gaman og það getur verið að slúðra þá veldur það vondri líðan. Að tala vel um aðra hvetur til jákvæðrar hegðunar, jákvæðra hugsana.
8. Engar afsakanir
Benjamin Franklin sagði eitt sinn „Sá sem er góður í afsökunum er sjaldnast góður í einhverju öðru.“ Hamingjusamt fólk afsakar sig ekki eða kennir öðrum um mistök sín. Þess í stað reyna þau að bæta fyrir þig og bæta sig.
9. Lifðu í núinu
Það er tilgangslaust að hanga í fortíðinni eða kvíða framtíðinni. Njóttu þess að lifa í dag. Andaðu að þér lífinu – núna.
10. Vaknaðu alltaf á sama tíma
Hefurðu ekki tekið eftir því að fólk sem á velgengni að fagna virðist alltaf vakna snemma? Að vakna á sama tíma á hverjum morgni tryggir jafnvægi í líkamsstarfsemi, eykur framleiðni og dregur úr líkamsstreitu.
11. Slepptu samanburði
Hver á sitt eigið líf svo hvers vegna að bera sig saman við aðra? Ef þú heldur að þú sért betri en næsti maður veldur það óeðlilegri góðri tilfinningu. Ef þú heldur að einhver annar sért betri en þú veldur það tilgangslausri vanlíðan. Þú verður hamingjusamari með því að horfa á þitt líf og fagna velgengni annara.
12. Veldu vinina vel
Óhamingja elskar góðan félagsskap. Þess vegna er mikilvægt að þínir vinir séu hamingjusamir, jákvæðir og fullir af krafti og gleði.
13. Ekki leita eftir viðurkenningu
Hamingjusömu fólki er nokk sama hvað öðrum finnst um það. Það fylgir eigin sannfæringu og lætur ekki baknagandi tuðandi tungur draga sig niður. Það er ekki hægt að gera öllum til geðs. Hlustaðu á skoðanir annara en þín viðurkenning er sú eina sem skiptir máli.
14. Hlustaðu
Talaðu minna, hlustaðu meira. Að hlusta heldur huganum opnum – fyrir nýjum hugmyndum og skoðunum. Því betur sem þú hlustar því betra.
15. Ræktaðu samböndin
Einmana manneskja er óhamingjusöm manneskja. Hamingjusamt fólk á í góðum samböndum við maka, vini og ættingja. Taktu alltaf frá tíma til að rækta samböndin við þitt fólk.
16. Hugleiddu
Hugleiðsla kemur jafnvægi á hug og líkama. Þú þarft ekki að vera einhver Zen meistari en nauðsynlegt er að geta hugleitt til að róa taugarnar ef á þarf að halda.
17. Borðaðu vel
Óhollur matur, skyndibiti og ruslmatur dregur úr orkunni og það er erfitt að vera hamingjusamur þegar orkuna vantar. Allt sem þú borðar hefur bein áhrif á getu líkamans til að framleiða réttu hormónin. Það hefur áhrif á skap, geðsveiflur og fókus. Veldu því mat sem heldur þér í réttu formi.
18. Hreyfðu þig
Gömul tugga en regluleg líkamsrækt veldur hamingju, réttu hormónin fara af stað í líkamanum. Svo og eykst sjálfsöryggi.
19. Gleymdu þér ekki í veraldlegum gæðum
Tveir bílar, hjólhýsi og sumarbústaður veldur ekki sjálfkrafa hamingju. Hamingjusamt fólk hleður ekki veraldlegum gæðum í kring um sig – þau draga fólk bara niður. Rannsóknir hafa sýnt að Evrópubúar eru hamingjusamari en bandaríkjamenn þar sem þeir eiga minni heimili, minni bíla og færri hluti.
20. Segðu sannleikann
Að ljúga veldur streitu, dregur úr sjálfsöryggi og kemur fólki til að líka illa við þig. Sannleikurinn gerir þig frjálsan segir máltækið. Að vera heiðarlegur eykur traust annara á þér. Segðu alltaf satt og afsakaðu sannleikann aldrei.
21. Vertu við stjórn
Hamingjusamt fólk velur sjálft sína stefnu. Láttu ekki aðra segja þér hvað þú átt að gera eða hvernig þú átt að lifa lífinu.
22. Sættu þig við stöðuna eins og hún er
Um leið og þú sættir þig við að lífið er ekki alltaf sanngjarnt eykur þú á hamingju þína. Það er tilgangslaust að ergja sig á hlutum sem þú getur engan veginn breytt. Einbeittu þér að því að hafa áhrif á það sem þú getur breytt.

No comments:

Post a Comment