Sunday, January 26, 2014

Skemmtileg helgi að baki :-) 24.-26 feb 2014.

Fengum Inga Þór og Morten í heimsókn á föstudag og þeir gistu um nóttina og við áttum notalegt kvöld saman með góðum mat og félagskap.

Fórum í göngu í áttina að höfða í fallegu veðri.

Svanur á bakkanum hinumegin við Hvítá.

Ég, Máni og Móna og Höfði í baksýn.

Maggi og Vörðufell í baksýn.

Enn ein mynd af fallegum himni.

Svanur á bakkanum á ánni.
Pottapartý.....

Hittum þessa rjúpu í göngunni.

Friday, January 24, 2014

Guðni Gunnarsson

Að taka ábyrð er einfalt mál
Það eina sem þú þarft að gera er að fyrirgefa. Ekki öðrum, ekki heiminum, heldur fyrirgefa þér fyrir öll þau neikvæðu álög sem þú hefur lagt á eigin herðar í áranna rás, fyrir sársaukann sem þú hefur leitt þig inn í með núverandi hegðun.
Að taka fulla ábyrgð á eigin tilvist felur í sér afneitun á meðvirkni. Við hættum að vera háð því að vera fjar- verandi. Meðvirkni er ábyrgðarleysi. Þegar maður hefur ekki tekið ábyrgð, þá er maður meðvirkur. Við erum öll meðvirk, en það er ekki fyrr en við erum háð því sem það skapar óróa.
Munurinn á ábyrgð og ábyrgðarleysi er óið og æið – æ, ó, aumingja ég, ég vil ekki vera eins og ég er, núna, vil ekki taka ábyrgð á því ljósafli sem í mér býr, vil ekki vera viljandi skapari því ég á það ekki skilið.
Við höfum öll frjálsan vilja og megum vera nákvæm- lega eins og við erum, þar sem við erum. Allir hafa alltaf rétt fyrir sér, alltaf, líka þú. Spurningin er hvort þú ert að velja viljandi eða óviljandi, því að ef þú ert ekki í vakandi vitund þá stjórnar skortdýrið förinni.

Friday, January 17, 2014

Thich Nhat Hanh

"Þú ert að panta tíma hjá lífinu, stefnumót sem er í hér og nú."
 -Thich Nhat Hanh

Vitund er eins og sólinn, þegar hún skín á hluti umbreytast þeir.
-Thich Nhat Hanh

Að sleppa gefur okkur frelsi og frelsi er eina skilyrðið fyrir hamingju.
-Thich Nhat Hanh

Gæði í lífi okkar veltur á fræjum sem liggja djúpt í vitund okkar.
-Thich Nhat Hanh


Andardráttur er brú sem tengir líf okkar meðvitund, sem sameinar líkana þinn og hugsanir þínar.
-Thich Nhat Hanh

Ef vinur þinn eða maki er reiður þá er gott bara að hlusta. Hlusta og bregðast ekki við. Gera þitt besta í að  æfa þig að hlusta í miskunsemi. Ekki hlusta í þeim tilgangi að dæma, gagnrýna eða greina. Hlusta aðeins til að hjálpa öðrum einstaklingi að tjá sig og finna einhverja lausn frá þjáningum sínum.
-Thich Nhat Hanh


Frelsi er ekki gefið af einhverjum öðrum, við verðum að rækta það í sjálfum okkur.

Það er dagleg æfing.

Enginn getur komið í veg fyrir það þú sért meðvitaður um hvert skref sem þú tekur eða andardrátt þinn, innöndunn og útöndun.
-Thich Nhat Hanh

Þögn er eitthvað sem kemur frá hjartanu, ekki utan frá. Þögn þýðir ekki að tala ekki og ekki gera hlutina. Það þýðir að það er ekki truflun innra með manni. Ef þú ert sannalega hljóður, þá er sama í hvaða ástandi þú ert sjálfur, þú getur notið þagnarinnar.
-Thich Nhat Hanh

Sunday, January 12, 2014

Fyrir flensu tímabilið, engifer og sítrínu drykkur.



Fyrir flensu tímabilið, engifer og sítrínu drykkur.

Þetta er yogic lækning, þegar þessu er blandað saman og tekið á fastandi maga á morgnana er það sagt að það virkilega vekur þig upp og hjálpar þér að forðast flensur á þessum árstíma. ( þú getur þynnt það út með soðnu vantni)

2 oz ( 60 ml)engifer safi ( bestur er engifer úr djúsvel, en einnig er hæft að tæta engifer í matvinnsluvel og svo kreista safan úr engifernum )

1 oz (30 ml) sítrónusafi.


1 oz ( 30 ml) hörfræolía, sesam, eða olífuolía ( samkvæmt yogic visku er hörfræolía og sesamolía góðar fyrir hjartað og ólífuolía góð fyrir heilan )

The Teachings of Yogi Bhajan
Reprinted from Aquarian Times, Spring 2004

Matarklúbbur hjá Gillu og Stjána.

Matarklúbbur hjá Gillu og Stjána á laugardag. Flott veisla með alles. Rækjur í chilli í forrétt og svo nautalund í aðalrétt og girnilegur marens ís með ávöxtum í eftir rétt. Hér eru Dóri , Þorri og Stjáni.

Kata, Guðný og Kristín.

Gilla og ég.

Maggi (afmælisbarn) og Snorri.

Saturday, January 11, 2014

Fegurð í sveitinni 11. jan 2014

Afmælisbörnin í göngu.

Það snjóaði í nótt og frysti þannig að það er þungur snjór á öllum trjám.

Laugará.


Einn fallegasti dagur vetrarins.

Vörðufell.

Máni og Móna.



Álftir á Hvítá.

Sólaruppkoman.

Álftir á flugi yfir Hvítá.

Friday, January 10, 2014

Máni og Móna eins árs.

Þau byrjuðu á yoga með mér í morgun og tóku virkan þátt í slökuninni.

Fórum í langan og góðan göngutúr, og svo baðaði ég þau og fengum okkur svo smá blund. 

Nýböðuð og vöknuð. Sætust :-)

Wednesday, January 8, 2014

Ótruglega vel mælt.

Fékk þetta lánað frá Byoga.


Ert þú að burðast með eitthvað gamalt sem er löngu hætt að þjóna þèr, dregur frá þér orku og jafnvel tefur þig í að ná árangri? Hvernig væri að velja fyrirgefningu og að sleppa? Já það er svo einfalt bara að sleppa.
Í hvert skipti sem við dveljum við hluti, höldum i þá og nærum, erum við ekki að næra ljósið okkar. Þegar við hugsum neikvætt t.d. um einhvern aðila sem við viljum ekki fyrigefa nærum við orku þess einstaklings í stað þess að næra eigin orku.
Gerðu þetta árið þar sem þú stígur úr myrkri í ljós, fyrirgefur og SLEPPUR öllu því sem þjónar þér ekki lengur. Þú ert frjáls.

Monday, January 6, 2014

Nýja árið.

Það er búið að vera frábært veður öll jólin og fallegir dagar, en nokkur vindur.

Diddú, Jói, Birna Sísi og Inga Rannveig og Perla litla komu við í heimsókn á föstudag. Máni og Móna voru ánægð með að hitta Perlu. 

Það var gaman að hitta þau og langt síðan að ég hef séð þau öll og stelpurnar orðnar stórar.

Diddú , Perla og Birna Sísí.


Vala koma og var hjá okkur um helgina. Fórum í göngu, pottinn og spjölluðum og borðuðum góðan mat :-)

Máni og Móna að hvíla sig eftir góða göngu.

Vala á Facebook :-)

Stemmingsmynd.

Jólin kvödd.

Jólaherðatré :-)

Thursday, January 2, 2014

JÓGA TE


JÓGA TE


Gott fyrir ónæmiskerfið, blóðið, taugakerfið og beinin. Einnig fyrir kvef, flensu og líkamlegan slappleika. Njótið kæru vinir!

JÓGA TE
5–6 negulnaglar
6–8 heilar kardimommur
½–1 kanilstöng
4–6 svört piparkorn
4–6 sneiðar af ferskri engiferrót
hnífsoddur af rifinni múskathnetu
1 bolli vatn
1–2 tsk. svart te í lausu, t.d. Earl Grey
1 bolli mjólk
1–2 tsk. hunang

Myljið kardimommur í morteli og setjið í pott ásamt öðru kryddi og vatni. Látið sjóða undir loki í ½–1 mínútu. Bætið svörtu tei út í og látið malla í 30-60 mín. Bætið síðan mjólk út í og látið suðuna koma upp. Síið, hellið í könnu og bætið hunangi út í.

(Má stækka uppskriftina og geyma í ískáp í nokkra daga)

Wednesday, January 1, 2014

Áramót 2013-2014

Áttum alveg æðisleg áramót. Vorum með rækjukoteil og svo kalkúnaskip með alles. 

Móna fylgist vel með :-) enda fengu þau systkinin að smakka rækjur og kalkún.
Rækjukokteill
Kalkúnaskip

Fórum snemma að sofa og vöknuðum snemma og fórum í yoga og svo í pottinn. Eftir nýbakaðar brauðbollur fórum við í göngu í hífandi roki og alltaf skjól niðri í Laugarási.

Nýjarsmorgun svo fallegur

Ótrúlegir litir.

Falleg birta.


Pottaferð :-)