Friday, January 17, 2014

Thich Nhat Hanh

"Þú ert að panta tíma hjá lífinu, stefnumót sem er í hér og nú."
 -Thich Nhat Hanh

Vitund er eins og sólinn, þegar hún skín á hluti umbreytast þeir.
-Thich Nhat Hanh

Að sleppa gefur okkur frelsi og frelsi er eina skilyrðið fyrir hamingju.
-Thich Nhat Hanh

Gæði í lífi okkar veltur á fræjum sem liggja djúpt í vitund okkar.
-Thich Nhat Hanh


Andardráttur er brú sem tengir líf okkar meðvitund, sem sameinar líkana þinn og hugsanir þínar.
-Thich Nhat Hanh

Ef vinur þinn eða maki er reiður þá er gott bara að hlusta. Hlusta og bregðast ekki við. Gera þitt besta í að  æfa þig að hlusta í miskunsemi. Ekki hlusta í þeim tilgangi að dæma, gagnrýna eða greina. Hlusta aðeins til að hjálpa öðrum einstaklingi að tjá sig og finna einhverja lausn frá þjáningum sínum.
-Thich Nhat Hanh


Frelsi er ekki gefið af einhverjum öðrum, við verðum að rækta það í sjálfum okkur.

Það er dagleg æfing.

Enginn getur komið í veg fyrir það þú sért meðvitaður um hvert skref sem þú tekur eða andardrátt þinn, innöndunn og útöndun.
-Thich Nhat Hanh

Þögn er eitthvað sem kemur frá hjartanu, ekki utan frá. Þögn þýðir ekki að tala ekki og ekki gera hlutina. Það þýðir að það er ekki truflun innra með manni. Ef þú ert sannalega hljóður, þá er sama í hvaða ástandi þú ert sjálfur, þú getur notið þagnarinnar.
-Thich Nhat Hanh

No comments:

Post a Comment